Evening Walk Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með stuttum ermum og pífukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-48 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. STUTTAR UMFERÐIR (á við um framstykki): Til að pífukanturinn (A.2) komi til með að leggjast fallega, eru prjónaðar stuttar umferðir yfir framstykkin. Hægra framstykki: Byrjið í 7. umferð með mynstri og prjónið frá röngu þannig: Prjónið eins og áður fram að sléttu lykkjunni á undan A.2 (= uppábrot), snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu eins og áður. Endurtakið í 12. hverri umferð upp þar sem v-hálsmálið byrjar. Vinstra framstykki: Byrjið í 7. umferð með mynstri og prjónið frá réttu þannig: Prjónið eins og áður fram að brugðnu lykkjunni á undan A.2 (= uppábrot), snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu eins og áður. Endurtakið í 12. hverri umferð upp þar sem v-hálsmálið byrjar. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 117 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 115 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 19) = 6. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri), prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka í stykkjum, á hringprjóna. Pífukanturinn er prjónaður jafnóðum með framstykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að ermakúpu, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Frágangur á stykki er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru kantar að framan prjónaðir fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 117-126-138-150-165-183 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með DROPS Cotton Merino. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, þar sem fækkað er um 19-20-22-24-27-31 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 98-106-116-126-138-152 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af 4-4-5-6-7-8 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg. Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 0-0-0-3-5-8 sinnum, 1 lykkja í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 3-6-9-6-6-5 sinnum og 1 lykkja í 4. hverri umferð (= önnur hver umferð frá réttu) alls 2-2-2-2-2-2 sinnum = 80-82-84-86-88-90 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm. Fellið nú af miðju 36-36-38-38-40-40 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 21-22-22-23-23-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 66-72-78-84-90-99 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja að hlið og lykkjur fyrir pífukant við miðju að framan) á hringprjón 3 með DROPS Cotton Merino. Prjónið stroff þannig: 7 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff eins og áður yfir næstu 57-63-69-75-81-90 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt (= uppábrot og þessi lykkja er nú prjónuð brugðið frá réttu og slétt frá röngu), prjónið A.2 yfir síðustu 7 lykkjur í umferð (= pífukantur). Fjöldi lykkja í A.2 kemur til með að breytast eftir því hvaða umferð er prjónuð í mynsturteikningu. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.2 eins og áður, prjónið 1 lykkju brugðið (= uppábrot), prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt 9-11-12-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 57-61-66-71-77-84 lykkjur (þegar það eru 7 lykkjur í A.2). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð til baka þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, brugðnar lykkjur fram að uppábroti, prjónið 1 lykkju slétt (= uppábrot), prjónið lykkjur í A.2 eins og áður. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni að hlið og uppábrot og A.2 við miðju að framan eins og áður, jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir – sjá STUTTAR UMFERÐIR. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Lykkjum er fækkað í stykkinu fyrir handveg, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli. Lestu því ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI og ÚRTAKA FYRIR HANDVEG áður en þú prjónar áfram. ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI: Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli í næstu umferð frá réttu. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið kantinn í hægra framstykki, prjónið 1 lykkju brugðið (= uppábrot), prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-1 sinni, annarri hverri umferð 12-12-13-13-14-14 sinnum og 4. hverri umferð 5-5-5-5-5-5 sinnum (= 18-18-19-19-20-20 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli). ÚRTAKA FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af 4-4-5-6-7-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu (= frá hlið). Prjónið út umferðina. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg í lok umferðar alveg eins og á bakstykki (þ.e.a.s. lykkjum er fækkað frá réttu og það er fækkað um 5-8-11-14-18-23 lykkjur + 4-4-5-6-7-8 lykkjur sem felldar voru af undir ermi). Þegar allar úrtökur fyrir handveg og V-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 22-23-23-24-24-25 lykkjur eftir fyrir öxl + 8 lykkjur í kanti (= uppábrot + A.2). Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 66-72-78-84-90-99 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja að hlið og lykkjur fyrir pífukanti við miðju að framan) á hringprjón 3 með DROPS Cotton Merino. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið síðustu 2 lykkjur í A.1, A.1 þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 lykkja brugðið (= uppábrot og þessi lykkja er prjónuð brugðið frá réttu og slétt frá röngu), A.2 yfir síðustu 7 lykkjur. Fjöldi lykkja í A.2 kemur til með að breytast eftir því hvaða umferð er prjónuð í mynsturteikningu. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur fram að uppábroti og fækkið jafnframt 9-11-12-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1, prjónið 1 lykkju brugðið (= uppábrot), prjónið A.2 eins og áður = 57-61-66-71-77-84 lykkjur (þegar það eru 7 lykkjur í A.2). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð til baka þannig: A.2, 1 lykkja slétt (= uppábrot), brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og uppábroti og A.2 að framhlið eins og áður, jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir – sjá STUTTAR UMFERÐIR. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Lykkjum er fækkað í stykkinu fyrir handveg, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli. Lestu því ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI og ÚRTAKA FYRIR HANDVEG áður en þú prjónar áfram. ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI: Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli í næstu umferð frá réttu. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan uppábroti, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1-1-1-1-1-1 sinni, annarri hverri umferð 12-12-13-13-14-14 sinnum og 4. hverri umferð 5-5-5-5-5-5 sinnum (= 18-18-19-19-20-20 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli). ÚRTAKA FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af 4-4-5-6-7-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu (= frá hlið), síðan er lykkjum fækkað fyrir handveg alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. í byrjun á umferð frá réttu (lykkjum er fækkað frá réttu og fækkað er um 5-8-11-14-18-23 lykkjur + 4-4-5-6-7-8 lykkjur sem felldar voru af undir ermi). Þegar allar úrtökur fyrir handveg og V-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 22-23-23-24-24-25 lykkjur eftir fyrir öxl + 8 lykkjur í kanti (= uppábrot + A.2). Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið af. ERMAR: Fitjið upp 72-78-87-93-99-108 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Cotton Merino. Prjónið A.1 umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 13-14-15-15-15-17 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 59-64-72-78-84-91 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar auka á út undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 1½-1½-2-2-1½-2 cm millibili alls 6-6-5-4-4-3 sinnum = 71-76-82-86-92-97 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 19-18-18-17-15-14 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Nú eru felldar af 8-8-10-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi = 63-68-72-74-78-81 lykkjur. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka á hringprjóna, jafnframt sem lykkjur eru felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 4-3-4-3-2-1 sinnum, 1 lykkja 2-7-6-11-16-20 sinnum og 2 lykkjur 5-4-4-3-2-1 sinnum = 23-26-28-28-30-33 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 28-29-29-30-30-30 cm. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Brjótið inn pífukantinn að framstykki meðfram uppábroti, þannig að réttan liggi að réttu og saumið inn pífukantinn í axlasauminn – axlasaumar eru saumaðir innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermum. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið eitt prjónamerki mitt aftan í hnakka. Prjónamerkið er notað síðar þegar kantar að framan eru prjónaðir. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Passið uppá að pífukanturinn sé brotinn inn að framstykki þannig að réttan liggi að réttu og prjónið upp lykkjur fyrir kant að framan þannig: Byrjið neðst á hægra framstykki og prjónið upp lykkjur í slétta lykkju (= uppábrot á röngu á stykki) þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju upp að axlasaumi (= ca 132-137-143-148-154-160 lykkjur), prjónið upp 23-23-24-24-25-25 lykkjur innan við 1 lykkju fram að prjónamerki mitt að aftan. Nú er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, jafnframt er aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem v-hálsmálið byrjar þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 3 sinnum (= 3 lykkjur fleiri hér) og lykkjufjöldinn er jafnaður út þannig að það verða alls 141-147-153-159-165-171 lykkjur fyrir kant að framan (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í lok umferðar). UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 2 cm, nú er fellt af fyrir hnappagötum þannig: Það er fallegast ef fellt er af fyrir hnappagötum þegar prjónaðar eru 2 lykkjur brugðið. 1 hnappagat: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Neðsta hnappagatið á að vera ca 3 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjaði. Þau 2 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett með ca 7½-8-8-8½-9-9 cm millibili. Prjónið stroff þar til það mælist alls 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Passið uppá að pífukanturinn sé brotinn inn að framstykki þannig að réttan liggi að réttu og prjónið upp lykkjur fyrir kant að framan þannig: Byrjið mitt aftan í hnakka við prjónamerki og prjónið upp lykkjur meðfram kanti í hálsmáli, síðan í slétta lykkju (= uppábrot á röngu á stykki) þannig: Prjónið upp 23-23-24-24-25-25 lykkjur innan við 1 lykkju fram að axlasaumi, síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja lykkju í uppábroti niður yfir vinstra framstykki (= ca 132-137-143-148-154-160 lykkjur). Nú er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, jafnframt er aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem v-hálsmálið byrjar þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 3 sinnum (= 3 lykkjur fleiri hér) og lykkjufjöldinn er jafnaður út þannig að það verða alls 141-147-153-159-165-171 lykkjur fyrir kant að framan (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í lok umferðar). UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm, Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið kanta að framan saman mitt að aftan með sauminn inn að röngu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Sandra Ring wrote:
Oh, danke, Sie haben aber schnell geantwortet. Es steht doch geschrieben, dass sich der Rüschen Rand sauber legt, müssen verkürzte Reihen gestrickt werden. Steht ganz oben in der Beschreibung. Rechtes Vorderteil: 7. Reihe des Musters. Danke für Ihre Bemühungen, kann man irgendwo was spenden für Ihren Aufwand? Ich habe Erfahrungen im Ayourstricken. Verstehe das nicht wo es hapert.
04.01.2024 - 17:55DROPS Design answered:
Liebe Frau Ring, oh ja sicher sorry; bei den verkürzten Reihen stricken Sie dann bei der 7. Reihe nur die Maschen von A.2 genauso wie bei der 7. Reihe im Diagram, und die 8. Reihe auch genauso, dh A.2 wird einfach wie zuvor gestrickt, als es keine verkürzten Reihe gäbe. Viel Spaß beim stricken!
05.01.2024 - 08:12Sandra Ring wrote:
Beim rechten Vorderteil fehlt mir in der 4. Reihe immer eine Masche (im Diagramm ist das eine rechts verschränkte Masche, genau da wo meine Bruchkante ist. Ignoriere ich dann diese rechts verschränkte und stricke diese Masche links, dass es eine Bruchkante bleibt? Mein Rüschen sieht auch nicht so aus, wie auf dem Bild. Wie genau sollten die beiden Maschen in der 4. Und 7. Reihe abgekettet werden? Das sieht so unordentlich aus. Habe schon X mal probiert.
04.01.2024 - 17:47Sandra Ring wrote:
Noch eine Frage zu der verkürzten Reihe. Ich stricke somit A1 bis zur Bruchkante Masche, drehe um und stricke A1 zurück und dann wieder zurück und dann stricke ich A2. Dh in der 7. Runde von A2, stricke ich zusätzlich zwei Reihen A1 und lasse A2 aus. Tut, mir leid, ist mein Debut mit verkürzten Reihen. Vielen Dank für Ihre Bemühungen.
04.01.2024 - 14:41DROPS Design answered:
Liebe Frau Ring, es gibt keine verkürzte Reihe, die Maschenanzahl in A.2 wechselt je nach den Zunahmen und die abgekettenen Maschen. Es kann vielleicht helfen, A.2 mit einer anderen Wolle extra zu stricken, um zu trainieren. Viel Spaß beim stricken!
04.01.2024 - 16:03Sandra Ring wrote:
Hallo, ich habe es gefunden, die erste Frage, bezüglich A2, in der Beschreibung. 🙄❣️ Ich hätte aber noch einige Fragen zu A2. Ich stricke gerade das rechte Vorderteil. Bei der 4. Reihe fehlt mir dann eine Masche (im Diagramm ist das eine rechts verschränkte Masche, genau da wo meine Bruchkante ist. Ignoriere ich dann diese rechts verschränkte und stricke diese Masche links, dass es eine Bruchkante bleibt?
04.01.2024 - 14:35DROPS Design answered:
Liebe Frau Ring, es wird bei der 1. Reihe A.2 2 Maschen zugenommen, so sind es 9 Maschen bei der 2. und 3. Reihe, bei der 4. Reihe ketten Sie die 2 ersten Maschen ab, dann stricken Sie die letzten Maschen wie beschrieben. Viel Spaß beim stricken!
04.01.2024 - 16:01Sandra Ring wrote:
Hallo, ich habe es gefunden, on der Beschreibung. 🙄❣️
03.01.2024 - 19:43Sandra Ring wrote:
Hallo, liebes Drops Team, Ich bin beim rechten Vorderteil am Anfang/Bund. Erste Reihe ist gestrickt und Rückrunde habe ich auch. (A2 in Pfeilrichtung??? Ist das korrekt??? Und die nächste Reihe darüber wird das Diagramm von links nach rechts gelesen und gestrickt? Vielen herzlichen Dank für Ihre Bemühungen.
03.01.2024 - 19:26Lone wrote:
I opskrift drops 232-48, ser det ud til at der er en hækletkant, men jeg kan ikke læse mig frem til det, eller er mig som ser forkert ??. H. Lone
19.06.2023 - 19:53DROPS Design answered:
Hej Lone, Flæsekanten strikkes på ifølge diagrammet, som du finder til højre for måleskitsen nederst i opskriften :)
22.06.2023 - 14:10Ingrid Ehret wrote:
Liebes Drops Team, dannke für diew schnelle dAntwort. Das heißt ich beginne beim rechten Vorderteil mit dem Ende der 1. Reihe (Reihe mit dem Pfeil). und beim linke fange ich die Reihe am Pfeil an. Habe ich es verstanden. Vielen Dank
09.01.2023 - 10:11DROPS Design answered:
Liebe Frau Ehret, A.2 beginnen Sie bei dem Pfeil an beiden Vorderteile, den die Maschen von A.2 am Ende der 1. Reihe (egal ob Hin- oder Rückreihe ist) gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!
09.01.2023 - 11:13Ingrid Ehret wrote:
Hallo, beim Vorderteil mit A 2 beginnen, laut Strickschrift (Pfeil) ist der Beginn auf der rechten Seite, im Textbeschriebe beginnt das Musgter auf der linken Seite. Was ist jetzt richtig. Bitte um baldige Antwort, komme so nicht weiter. Danke.
07.01.2023 - 17:29DROPS Design answered:
Liebe Frau Ehret, A.2 beginnen Sie am Ende der 1. Reihe, mit einer Rückreihe beim rechten und mit einer Hinreihe beim linken Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!
09.01.2023 - 09:16Ingrid Ehret wrote:
Hallo, die Mascshen nach dem Umschlag auch rechts verschränkt zusammenstricken oder normal. Ich glaube dann habe ich alles verstanden. Danke
03.01.2023 - 12:06DROPS Design answered:
Liebe Frau Ehret, ja die 2 Maschen nach dem Umschlag stricken Sie rechts verschränkt zusammen (= siehe 9. Symbol). Viel Spaß beim stricken!
03.01.2023 - 16:44