Chamomile Tea Cardi |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með v-hálsmáli, stuttum puffermum og picotkanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-21 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um v-hálsmál): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. PICOT: Prjónið 1 lykkju snúið slétt, * stingið inn hægri prjóni á milli 2 fyrstu lykkja á vinstra prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 2 nýjar lykkjur á vinstri prjóni), prjónið sléttar lykkjur og fellið jafnframt af 5 lykkjur (= 1. lykkja á hægri prjóni + 2 uppslættir + 2 lykkjur). Haldið áfram að prjóna frá *-* og fellið af 5 lykkjur alveg eins meðfram allri affellingunni þar til nægilega margar lykkjur eru eftir til að gera nýjan picot. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður, hvert fyrir sig þar til handvegurinn hefur verið prjónaður til loka. Síðan er fram- og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Afgangur af ermi er prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru prjónaðir kantar að framan. BAKSTYKKI: Byrjið með hægri öxl. Síðan vinstri öxl áður en lykkjur eru settar saman og bakstykkið er prjónað. HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 24-25-26-27-27-28 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS BabyAlpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2 cm, fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu (að hálsi) þannig: fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum og 2 lykkjur 1 sinni = 28-29-30-31-31-32 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá röngu eru fitjaðar upp 30-30-32-32-36-36 nýjar lykkjur (mitt aftan í hnakka) = 58-59-62-63-67-68 lykkjur. Klippið þráðinn, geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan. VINSTRI ÖXL (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 24-25-26-27-27-28 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS BabyAlpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2 cm, fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu (að hálsi) þannig: fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum og 2 lykkjur 1 sinni = 28-29-30-31-31-32 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu. Setjið nú vinstri og hægri öxl saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Byrjið frá réttu, prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá vinstri öxl og prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá hægri öxl = 86-88-92-94-98-100 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 11-9-8-8-12-10 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, aukið út fyrir handvegi í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki innan við 4 ystu lykkjur í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eiga alltaf að sitja innan við 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið. Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3 lykkjur sléttprjón, A.1, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.2, 3 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út alveg eins og útskýrt er í mynsturteikningu þar til auknar hafa verið út alls 5-8-9-9-14-17 lykkjur í hvorri hlið = 96-104-110-112-126-134 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 3-3-3-3-1-1 umferðir sléttprjón án útaukningar. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 1-1-1-3-3-4 sinnum og síðan 3-4-5-6-7-8 lykkjur 1 sinni = 106-116-124-136-152-166 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Klippið þráðinn, geymið stykkið og prjónið framstykki eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 24-25-26-27-27-28 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Aukið síðan út fyrir v-hálsmáli og handvegi. Þetta er gert samtímis. Lestu því kaflann V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram! V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 8-10-10-11-10-11 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í lok umferðar við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4. hverri umferð (önnur hver umferð frá réttu) alls 9-9-9-9-10-10 sinnum, síðan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 11-11-12-12-13-13 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-9-8-8-12-10 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út fyrir handvegi í hlið alveg eins og á bakstykki. Þ.e.a.s. setjið 1 prjónamerki innan við 4 fyrstu lykkjur í umferð frá réttu. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3 lykkjur sléttprjón, A.1, prjónið eins og áður út umferðina. Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út alveg eins þar til auknar hafa verið út alls 5-8-9-9-14-17 lykkjur í hlið við handveg. Á eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 3-3-3-3-1-1 umferðir sléttprjón án útaukninga. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 1-1-1-3-3-4 sinnum og síðan 3-4-5-6-7-8 lykkjur 1 sinni. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn, geymið stykkið (útaukning fyrir v-hálsmáli hefur nú verð gerð til loka) og prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 24-25-26-27-27-28 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Aukið síðan út fyrir v-hálsmáli og handvegi. Þetta er gert samtímis. Lestu því kaflann V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram! V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 8-10-10-11-10-11 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, aukið út um 1 lykkju í byrjun umferðar við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4. hverri umferð (önnur hver umferð frá réttu) alls 9-9-9-9-10-10 sinnum, síðan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 11-11-12-12-13-13 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-9-8-8-12-10 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, aukið út fyrir handvegi í hlið á sama hátt og á bakstykki. Þ.e.a.s. setjið 1 prjónamerki innan við 4 síðustu lykkjur í umferð frá réttu. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.2, 3 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út alveg eins þar til auknar hafa verið út alls 5-8-9-9-14-17 lykkjur í hlið við handveg. Á eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 3-3-3-3-1-1 umferðir sléttprjón án útaukninga. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 1-1-1-3-3-4 sinnum og síðan 3-4-5-6-7-8 lykkjur 1 sinni. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru stykkin sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið eftir lykkjum frá vinstra framstykki á hringprjón 3, prjónið sléttar lykkjur yfir 106-116-124-136-152-166 lykkjur frá bakstykki og prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá hægra framstykki. Takið frá prjónamerkin frá handvegi. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki (á milli framstykkis og bakstykkis – það eru 106-116-124-136-152-166 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Lykkjufjöldinn á framstykkjum er ekki óráðinn þar sem áfram er aukið út fyrir v-hálsmáli). Stykkið er nú mælt frá þar sem prjónamerkin voru sett í . Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-7-7 cm frá prjónamerki, setjið 4 prjónamerki í stykkið. Látið þessi prjónamerki fylgja með í stykkinu, þessi prjónamerki eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir aðstnið. Teljið 30-34-37-42-48-54 lykkjur út hvoru megin við 2 prjónamerki sem voru sett í hliðar á fram- og bakstykki og setjið 1 prjónamerki hvoru megin við þessar 60-68-74-84-96-108 lykkjur (= 4 prjónamerki). Það eru 46-48-50-52-56-58 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan fyrsta prjónamerki, prjónið A.4, prjónið sléttprjón fram að næsta prjónamerki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið A.4, prjónið sléttprjón fram að síðasta prjónamerki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til A.3 og A.4 hefur verið prjónað 2½ sinnum á hæðina (nú hafa lykkjur verið fækkaðar 5 sinnum á hæðina og fléttaðar saman 10 sinnum á hæðina). Eftir alla úrtöku og aðsnið og útaukningar fyrir v-hálsmáli eru 194-214-230-254-286-314 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem prjónamerkin voru sett. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 59-65-69-77-85-95 lykkjur jafnt yfir = 253-279-299-331-371-409 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúinn brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af með PICOT – sjá útskýringu að ofan. Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl. ERMI: Fitjið upp 30-32-34-36-38-40 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 lykkjur sléttprjón, prjónið 1 lykkju framan og aftan í hverja af næstu 20-22-24-26-28-30 lykkjur (= 20-22-24-26-28-30 lykkjur fleiri), 5 lykkjur sléttprjón = 50-54-58-62-66-70 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur í handvegi í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3-3-3-4-4-4 sinnum, 1 lykkja 5-7-9-9-10-14 sinnum, 2 lykkjur 4-4-4-4-5-4 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 100-108-116-124-134-142 lykkjur. Setjið stykkið saman. Setjið 1 prjónamerki þar sem stykkið er sett saman (mitt undir ermi) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem stykkið var sett saman, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4-4-3-3-2½-2½ cm millibili alls 4 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8-7-7-6-5 cm frá þar sem stykkið var sett saman, fækkið um 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð (þetta er gert samtímis sem útaukning heldur áfram mitt undir ermi). Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 88-94-100-106-114-120 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-16-15-15-14-12 cm frá þar sem prjónamerki var sett. Í næstu umferð er fækkað um 22-24-28-32-36-40 lykkjur jafnt yfir = 66-70-72-74-78-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með PICOT – munið eftir útskýringu að ofan. Ermin mælist ca 31-32-32-33-33-33 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju á framstykki/bakstykki – skiptið e.t.v. auka efni fallega efst á ermakúpu. Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka – prjónamerkið er notað þegar kantar að framan eru prjónaðir. KANTAR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki, notið hringprjón 2,5 og prjónið upp ca 168-174-182-188-196-202 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram öllu framstykkinu að prjónamerki mitt aftan í hnakka. Prjónið síðan upp ca 167-173-181-187-195-201 lykkju meðfram hálsmáli og niður meðfram vinstra framstykki – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Eftir 2 fyrstu umferðir, setjið 1 prjónamerki í «hak» neðst í v-hálsmáli á báðum framstykkjum – prjónamerkin eru sett í snúna slétta lykkju (séð frá réttu). Endurtakið umferð 1 og 2 eins og útskýrt er að ofan. Að auki er nú aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í hverri umferð frá réttu að loknu máli (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar, svo ekki myndist gat og lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff). Þegar kantur að framan mælist ca 1½ cm, fellið af fyrir 4 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = sláið 1 sinni uppá prjóninn frá réttu og prjónið uppsláttinn slétt saman með 1 lykkju slétt frá röngu. Efsta hnappagatið á að sitja beint fyrir neðan lykkju með prjónamerki í «hak» neðst í v-hálsmáli og neðsta hnappagatið á að sitja 6 cm frá neðri kanti. Hin 2 hnappagötin skiptast jafnt yfir á milli þessa 2 hnappagata. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 3 cm. Fellið aðeins laust af. FRÁGANGUR-2: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Neysa Azzahra wrote:
Hi, when casting on new stitches at both sides of the piece in the back piece, did I do it when I work on the knitting rows only? Or do I have to cast on when I'm doing the purl rows too? Thanks.
20.01.2023 - 04:31DROPS Design answered:
Dear Mrs Azzahra, when working the right shoulder, back piece you cast on the new stitches at the end of the rows from wrong side (for neck, only one one side) and when working the left shoulder, back piece you will cast on the new stitches at the end of the rows from right side only (for neck, only on one side). Happy knitting!
20.01.2023 - 08:36Clemens wrote:
Hallo gibt es dieses Drop desinge auch in Koreanischer Sprache?
06.11.2022 - 12:58DROPS Design answered:
Liebe Frau Clemens, leider noch nicht - es sind doch viele anderen Sprachen erhältlich: klicken Sie auf dem drop-down Menu unter dem Foto. Viel Spaß beim stricken!
07.11.2022 - 09:10Neysa Ahmadina Azzahra wrote:
On the diagram there is an instruction that says: "pick up yarn from the front before next stitch (yarn between outermost stitch on right and left needle) and put it on left needle, knit 1 into back loop so that the stitch will lean towards the left" Is that the same as 'make 1' or M1 in knitting? Thanks.
15.07.2022 - 03:05DROPS Design answered:
Hi Neysa, Yes it is the same as Make 1 left (M1l). Happy knitting!
15.07.2022 - 06:51Neysa Azzahra wrote:
I have a question about the back piece. Lets say I am making this in size M. I want to make sure, is the increase for the armhole start 9 cms after the very first cast on of the shoulders (the 1 cast on), or after the last cast on I made (the 2 cast ons)? I hope my question make sense. Thank you so much!
13.07.2022 - 16:41DROPS Design answered:
Hi Neysa Azzahra, you measure from cast-on edge (on shoulder), I mean from the beggining of your work. Happy knitting!
14.07.2022 - 08:38Ingrid Ehret wrote:
Danbke für die schnelle antwort. DAs heißt der Umschlag wird auf der linken seite verschränkt gestrickt, damit kein Loch entsteht. Habe ich das richtig verstanden. Ich warte immer noch auf eine nerue Anleitung die noch nicht erschienen ist, nämlich auch ein westchen aus safran mit Lochmuster.d Wann wird dies erscheinen
23.05.2022 - 16:56DROPS Design answered:
Liebe Frau Ehret, es wird hier keinen Umschlag gestrickt (doch 1 Zunahme), nun genau wie bei dem 4. und 5. Zeichen gestrickt. Wenn dieses Modell bei der Abstimmung gewählt wurde, dann wird es bald veröffentlicht. Viel Spaß beim stricken!
24.05.2022 - 08:36Ingrid Ehret wrote:
Liebes Drops team, wollte die Jacke stricken, habe jedoch festgestellt, dass im Diagramm andere Zeichen zum bearbeiten angegeben, als in der Zeichnung des Strickmusters. Bitte um Kontrolle und baldige Nachricht, da ich mich mitten im stricken befinde. Vielen Dank im voraus.
23.05.2022 - 13:33DROPS Design answered:
Liebe Frau Ehret, danke für den Hinweis, also 4. und 5. Zeichen lesen Sie wie mit dem Umschlag wie bei A.1 und A.2, es wird so bald wie möglich korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
23.05.2022 - 16:27Rocio Garcia Castro wrote:
Me encanta este patrón y antes de hacerlo lo he leído entero. En la explicación del hombro derecho en el segundo párrafo indica "cuando la pieza mida 21 cm...". Esto es correcto? En el hombro izquierdo indica cuando la pieza mida 2 cm.
14.05.2022 - 20:45DROPS Design answered:
Hola Rocío, puedes ver la respuesta debajo.
15.05.2022 - 23:32Rocío wrote:
Me encanta este patrón y antes de hacerlo lo he leído entero. En la explicación del hombro derecho en el segundo párrafo indica "cuando la pieza mida 21 cm...". Esto es correcto? En el hombro izquierdo indica cuando la pieza mida 2 cm.
13.05.2022 - 08:27DROPS Design answered:
Hola Rocío, se trata de una errata, es cuando la labor mida 2 cm. Trataremos de corregirla lo antes posible.
15.05.2022 - 23:02Helena Mjöberg wrote:
Picknick time
15.01.2022 - 08:50AD Knits wrote:
Stella
14.01.2022 - 20:07