May Tee |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum / t-shirt úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu á öxlum, sléttprjóni og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-53 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Byrjið frá réttu við prjónamerki mitt að aftan, prjónið 15-15-16-16-17-18 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 45-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-75-80-80-85-90 lykkjur slétt (hér verður þú einnig að auka út fyrir öxl eins og útskýrt er í uppskrift – útauknar lykkjur eru ekki taldar með), snúið, herðið á þræði og prjónið 90-90-96-96-102-108 lykkjur brugðið (munið eftir útaukningu fyrir öxl). Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að prjónamerki mitt að aftan. Upphækkun er nú lokið og það hefur verið aukið út alls 2 sinnum fyrir öxl (8 lykkjur). Prjónið nú BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. ÚTAUKNING-1 (frá réttu): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu – á einungis við þegar upphækkun er prjónuð): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-110-114-118-122-126 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 126-130-138-142-150-154 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Að auki eru sett 2 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjur og hvort prjónamerki af þessum 2 eru sett í lykkju. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir öxl og prjónamerkin verð að hafa annan lit en prjónamerkið mitt að framan til að aðgreina þau. Fyrra prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 31-32-34-35-37-38 lykkjur (½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 62-64-68-70-74-76 lykkjur frá 1. prjónamerki (framstykki), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 31-32-34-35-37-38 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 2. prjónamerki. Látið þessi 2 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út hvoru megin við þau. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Upphækkunin gerir flíkina aðeins hærri í hnakka. Athugið að útaukning á öxlum er gerð samtímis og 3 síðustu umferðir eru prjónaðar í upphækkun – lestu því einnig kaflann um ÚTAUKNING FYRIR AXLASÆTI og ÚTAUKNING-2 (þegar prjónað er frá röngu. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í útaukning fyrir axlarsæti. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir öxl þannig: Aukið út á UNDAN og á EFTIR lykkju með 1. og 2. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 14 sinnum = 182-186-194-198-206-210 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 5 cm frá prjónamerki við hálsmáli mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur á undan 1. prjónamerki, fellið af 11-11-13-13-15-15 lykkjur (lykkja með prjónamerki + 5-5-6-6-7-7 lykkjur hvoru megin við hana – þessar lykkjur koma til með að mynda lítinn «flipa»), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur á undan 2. prjónamerki, fellið af 11-11-13-13-15-15 lykkjur, prjónið sléttprjón að miðju að aftan = 160-164-168-172-176-180 lykkjur. Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert samtímis sem prjónað er – þessi nýju prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir ermum. Prjónið 40-41-42-43-44-45 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki, fitjið upp 36-38-40-42-46-50 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir ermi, setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 80-82-84-86-88-90 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið 3. prjónamerki, fitjið upp 36-38-40-42-46-50 nýjar lykkjur fyrir ermi, setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju, prjónið 40-41-42-43-44-45 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki) = 232-240-248-256-268-280 lykkjur. Aukið nú út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 18-20-21-22-23-24 sinnum = 304-320-332-344-360-376 lykkjur. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-21-22 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 1-0-0-0-0-0 cm í sléttprjóni án útaukningar – stykkið mælist 19-19-20-21-21-22 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir berustykki þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú eru lykkjur auknar út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á ermum verður sá sami. Endurtakið útaukningu þannig: S: aukið út í 4. hverri umferð alls 2 sinnum. M: aukið út í 3. hverri umferð alls 4 sinnum. L, XL, XXL og XXXL: aukið út í annarri hverri umferð alls 6-6-7-7 sinnum, síðan í hverri umferð alls 2-5-9-13 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 312-336-364-388-424-456 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki mitt að framan. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 42-45-50-54-60-65 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki), setjið næstu 72-78-82-86-92-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 84-90-100-108-120-130 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 72-78-82-86-92-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 42-45-50-54-60-65 lykkjur í sléttprjóni (½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-196-216-236-260-284 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið – mitt í 6-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6 cm millibili alls 3 sinnum = 168-184-204-224-248-272 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 23 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið 72-78-82-86-92-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-86-90-96-102-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – mitt í 6-8-8-10-10-12 lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það á að nota það þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-1-1-1-1-1 cm millibili alls 4-6-5-4-3-1 sinnum = 70-74-80-88-96-108 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 10-8-7-5-4-2 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-18-22-26-34 lykkjur jafnt yfir = 58-60-62-66-70-74 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 14-12-11-9-8-6 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Þræðið þráð upp og niður í gegnum uppfitjunarkantinn efst á ermi. Brjótið ermakúpuna þannig að hún passi í beina línu við opið þar sem lykkjur voru felldar af á öxl – ATH. Lykkjur sem felldar voru af á öxl koma til með að forma lítinn «flipa» – þessi flipi á að liggja undir ermakúpunni og kemur til með að gefa auka stuðning fyrir puppermi. Saumið ermakúpuna við opið í beina línu – sjá A.1 (myndin sýnir öxl og flipa séð ofan frá). Endurtakið í hinni hliðinni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Sedef wrote:
Increase tip 1 is incorrect. Before the marker, after the marker, the tip says to take the yarn from back for both and it doesn't work. Could you please check and correct this?
23.02.2024 - 14:58DROPS Design answered:
Dear Sedef, you are right, after marker you should pick up the stitch from the front, it will be edited, thanks for noticing. Happy knitting!
23.02.2024 - 15:44Maria wrote:
Hallo, Ik heb opgemerkt dat de schoudermeerdering in de instructie video anders worden gebreid dan dat in de uitleg staat.Meerdering vóór de steek wordt in video zo gebreid dat de lus van voor naar achter is opgenomen en dan in achterste lus gebreid . Kunt u aub dit uitleggen. Bedankt
18.01.2024 - 20:54DROPS Design answered:
Dag Maria,
Dat zou kunnen kloppen. De instructies in het patroon zijn altijd leidend.
21.01.2024 - 12:07Kim wrote:
Hello~Thank you so much for this nice design!:) I love it! I started to work on it just a few hours ago, and I have a question. I've just finished with neck edge,and now I'm about to start with yoke. But sadly, because I'm just a beginner, I don't know how to put the marker without working the stitches. It looks like the markers are also counted as stitches. But I don't know how to make it. Before, I just learned to put marker between stitches. Please help me with this ~
07.01.2024 - 11:33DROPS Design answered:
Dear Kim, if you use locking markers (the ones in shape of a lock or that can easily be opened) simply insert them as follows: count the number of stitches as indicated and then insert the marker inside the stitch. This will then be a stitch with a marker; it doesn't count separately, it's just counting the stitch it's sitting in. Then, you will move it upwards; when you reach the stitch with the marker in the next row, unlock it, take it out, work the stitch and then put the marker in the new stitch. Happy knitting!
07.01.2024 - 18:26HKBS wrote:
Hei! Takk for oppskrifta - dette ser ut som ein veldig fin topp! Men me har no lese oppskrifta mange ganger, og det ser ut som det er ein feil: Når ein har strikka høgare nakke har ein hatt 2 skulderaukingar. Då skal det berre strikkast 12 skulderaukingar vidare (ikkje 14, som det står i mønsteret - det gjeld berre om ein ikkje har strikka høgare nakke). Vonar de vil rette dette.
01.10.2023 - 15:14Dagmara wrote:
DODAWANIE OCZEK NA RAMIONA: Czy nie ma błędu w liczbie oczek rozmiar L? „Dalej przerabiać tak samo, dodając oczka w sumie 14 razy w każdym okrążeniu = 194” Nabrane 114 oczek + 8 (podwyższenie) + (14x4) = 178
28.07.2023 - 19:09DROPS Design answered:
Witaj Dagmaro, w rozmiarze L na początku masz 114 oczek. Na wykończeniu dekoltu równomiernie dodajesz 24 oczka =138. Później dodajesz oczka na ramiona już na podwyższeniu dekoltu, w sumie tych powtórzeń z dodawaniem oczek musisz wykonać 14 > 14x4=56 oczek. 138+56=194 oczka. Pozdrawiamy!
29.07.2023 - 09:29Wendy wrote:
Is this pattern listed on Ravelry? I was unable to find it there. Thank you so much! Wendy
08.07.2023 - 23:01DROPS Design answered:
Dear Wendy, maybe some of our patterns are not in Ravelry. Happy knitting!
10.07.2023 - 17:32Mary wrote:
Is increase tip #1, right side after marker, correct? Pick up from behind and knit through back loop???? Thanks
17.03.2023 - 03:34DROPS Design answered:
Dear Mary, Increase tip 1 is worked from the right side of piece, and yes, before the marker means on the right hand side of the marker and after the marker means on the left hand side of the marker. Happy knitting!
17.03.2023 - 08:55Nicole wrote:
Bonjour. Je me permets de vous contacter car j’ai vu une vidéo sur YouTube d’une femme qui ne fait que critiquer les laines Drops et donner des avis négatifs. Je trouve ça inadmissible. Je travaille beaucoup avec vos fils que j’adore. Je vous envoie le lien de la personne en question. https://youtu.be/ruELfUwajG8. Je trouve que c’est scandaleux.
21.12.2022 - 22:28Christinetra Traen wrote:
Een top truitje, zal uit proberen. Hartelijk dank
30.09.2022 - 21:59Nicole wrote:
Bonjour. pour le rehaussement, au rg suivant on doit tricoter sur la maille où nous avons serré et tourné? Ex exemple : pour tricoter 45m je suis obligée de tricoter là où j’ai tourné à la 30 eme maille ? Ce n’est pas la même technique que pour les Germain short rows ? Merci beaucoup pour votre aide.
03.09.2022 - 11:55DROPS Design answered:
Bonjour Nicole, dans cette technique, vous tricotez effectivement la 1ère maille au début du rang suivant, mais vous pouvez également utiliser une autre technique pour les rangs raccourcis si vous le préférez. Bon tricot!
05.09.2022 - 08:53