Cleo the Cat |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónaður leikfangaköttur / köttur fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Þema: Leikföng.
DROPS Baby 43-22 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A og B. Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig stykkið lítur út og hvar á að sauma. Mynsturteikning A og B sýnir hvernig á að sauma sporin. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KÖTTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Fyrst eru eyrun prjónuð hvort fyrir sig, síðan er stykkið sett saman og kötturinn er prjónaður til loka. Stykkið er saumað saman og fyllt með vatti. Andlitið er saumað út og að lokum er rófan prjónuð og saumuð við stykkið. EYRA: Notið 2 sokkaprjóna (fitjið upp lykkjur á annan og prjónið með hinum). Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum blush í DROPS Merino Extra Fine. Allt stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 6 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur JAFNFRAMT er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. UMFERÐ 4: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt = 8 lykkjur. UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur JAFNFRAMT er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið umferð 4 og 5 þar til 14 lykkjur eru eftir á prjóni, stykkið mælist ca 2 cm. Klippið þráðinn, geymið stykkið og prjónið annað eyra á sama hátt. HÖFUÐ OG HÁLS: Nú eru eyrun sett saman og höfuðið er prjónað héðan. Notið hringprjón 3, fitjið upp 1 lykkju, prjónið lykkjur frá öðru eyranu, fitjið upp 2 lykkjur, prjónið lykkjur frá hinu eyranu, fitjið upp 1 lykkju = 32 lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka á hringprjón þar til höfuðið mælist ca 5 cm (ca 24 umferðir garðaprjón), stykkið mælist alls ca 7 cm með eyrum. BÚKUR: Nú er prjónað garðaprjón og rendur JAFNFRAMT er aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttar lykkjur með litnum eyðimerkurrós og aukið út um 7 lykkjur jafnt yfir. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur með litnum eyðimerkurrós, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. UMFERÐ 3-6: Prjónið sléttar lykkjur með litnum blush. Endurtakið umferð 1-6 alls 4 sinnum. Nú eru 60 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón með litnum blush (nú eru alls 8 umferðir garðaprjón með litnum blush á eftir síðustu rönd með litnum eyðimerkurrós). Búkurinn mælist ca 6 cm (28 umferðir eftir garðaprjón), stykkið mælist ca 13 cm með eyrum. Fellið af. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman tvöfalt þannig að eyrun beygist í hvorri hlið og hliðar á stykki mætast við miðju að aftan. Saumið saman frá eyra að eyra – sjá ör og svarta stjörnu í mynsturteikningu A.1. Saumið hliðarnar saman á stykki mitt að aftan, saumið í ystu lykkjubogana í ysta garðaprjón, frá höfði og niður að affellingarkanti sjá ör og hvíta stjörnu í mynsturteikningu A.1. Fyllið köttinn með vatti. Leggið stykkið flatt þannig að saumurinn liggi fyrir miðju á stykki. Saumið saman meðfram affellingarkanti – sjá ör og svartan ferning í mynsturteikningu A.1. Nú er hálsinn formaður. Notið 1 þráð með litnum blush, þræðið í gegnum lykkjurnar í 6. umferð í garðaprjóni upp frá fyrstu rönd með litnum eyðimerkurrós. Herðið aðeins á þræðinum til að hálsinn verði sýnilegri á kettinum. Hnýtið hnút og festið enda. ÚTSAUMUR: Það á að sauma út nef, veiðihár og augu á kettinum. Notið litinn eyðimerkurrós fyrir nef, litinn svartur fyrir veiðihár og augu. Nefið er með 2 lárétt stutt spor með flatsaumi sem eru ca ½ cm löng og 7 lóðrétt spor með flatsaumi sem eru ca 1½ cm löng, lóðréttu sporin ná upp frá láréttu sporinu. Veiðihárin samanstanda af 3 sporum með flatsaumi hvoru megin við nefið, þau eru 1½, 2 og 1½ cm löng – byrjið við nefið og saumið út að miðju. Hvort auga er með 1 keðjuspori, þau eru staðsett hvoru megin við nefið ca 1 cm yfir nef og á ská. Sjá mynsturteikningu A og B og mynd af kettinum. RÓFA: Fitjið upp 14 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum blush. Prjónið fram og til baka í garðaprjóni og röndum þannig: * Prjónið 8 umferðir garðaprjón með litnum blush, prjónið 8 umferðir garðaprjón með litnum eyðimerkurrós *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum. Rófan mælist ca 17 cm. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Herðið á þræði og festið vel. Brjótið rófuna saman á lengdina og saumið hana saman eins og langan hólk – saumið í ystu lykkjubogana. Fyllið rófuna með vatti og saumið hana niður við affellingarkantinn neðst niðri, ca 3 cm inn frá annarri hliðinni – sjá svartan þríhyrning í mynsturteikningu A.1. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |