Blue Pebbles |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti. Stærð: Fyrirburar til 2 ára.
DROPS Baby 43-4 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki frá réttu): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2: (á við um útaukningu fyrir axlarsæti frá röngu): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri (séð frá réttu). Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri (séð frá réttu). Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT (á við um kant fyrir hnappagötum aftan í hnakka): Fellið af fyrir hnappagötum í byrjun á umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman. Í næstu umferð (ranga) prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með (2) 2-2½-2½-3 (3) cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður þar til klaufin/opið hefur verið prjónað til loka. Síðan er stykkið sett saman og berustykkið er prjónað í hring. Jafnframt eru lykkjur auknar út fyrir axlarsæti, ermar og berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. PEYSA: Fitjið upp (70) 74-78-82-86 (94) lykkjur á hringprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram í (2) 2-2-3-3 (3) cm – munið eftir HNAPPAGAT í byrjun á umferð frá réttu – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (6) 10-10-14-14 (14) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið yfir 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) = (76) 84-88-96-100 (108) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (ystu 4 lykkjurnar eru prjónaðar í hvorri hlið slétt). Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki eftir 4 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Að auki eru sett 4 nýjar lykkjur í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerki við hálsmál til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið (15) 17-18-18-19-21 lykkjur (½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið (10) 10-10-14-14 (14) lykkjur frá 1. prjónamerki (öxl), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið (26) 30-32-32-34 (38) lykkjur frá 2. prjónamerki (framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið (10) 10-10-14-14 (14) lykkjur frá 3. prjónamerki (öxl), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru (15) 17-18-18-19 (21) lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (½ bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar – í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Prjónið sléttprjón með 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að aftan. Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út á EFTIR 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Þ.e.a.s. það er aukið út í hverri umferð og aukið er út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar leggist fallega. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls (10) 10-10-12-12 (12) sinnum = (116) 124-128-144-148 (156) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca (3) 3-3-4-4 (4) cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan – jafnframt er stykkið sett saman mitt að aftan eins og útskýrt er að neðan. Lestu ÚTAUKNING Á ERMUM og KLAUF/OP MITT AÐ AFTAN áður en þú prjónar áfram! ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að aftan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Aukið svona út í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls (10) 12-11-9-9 (10) sinnum. Ermin mælist ca (9) 11-10-9-9 (10) cm frá prjónamerki við hálsmál. Eftir útaukningu á ermi er lokið og stykkið hefur verið sett saman (eins og útskýrt er að neðan) eru (152) 168-168-176-180 (192) lykkjur í umferð. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. KLAUF MITT AÐ AFTAN: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (6) 6-7-7-8 (8) cm frá uppfitjunarkanti hefur klaufin verið prjónuð til loka og stykkið sett saman þannig að afgangur af berustykki er prjónað í hring. Prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir í garðaprjóni í lok umferðar. Leggið 4 lykkjur garðaprjón frá byrjun á umferð yfir þessar 4 lykkjur þannig að hnappagötin komi efst. Prjónið lykkjur frá kanti í garðaprjóni slétt saman 2 og 2 (4 lykkjur færri). Prjónið síðan í hring (eftir að stykkið hefur verið sett saman heldur útaukning á ermum áfram í annarri hverri umferð, í stað hverri umferð frá réttu). Í fyrstu umferð eftir að lykkjur hafa verið prjónaðar saman, prjónið brugðnar lykkjur yfir þessar 4 lykkjur frá klauf. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. ATH: Byrjun á umferð færist til þannig að nú er byrjunin mitt á milli 4 lykkja frá klauf. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: STÆRÐ (<0): = (152) lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist (10) cm frá prjónamerki við hálsmál. Skiptið berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 ÁRA): Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum sitji í ystu í lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Það eru 34-32-32-32 (34) lykkjur á hvorri ermi á milli lykkja með prjónamerki í. Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverju og einu af þessum 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið nú út lykkjur á framstykkjum, bakstykki og á báðum ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 1-3-4-5 (5) sinnum = 176-192-208-220 (232) lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 11-12-12-13 (13) cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 11-12-12-13 (14) cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR ÞANNIG: Prjónið eins og áður yfir fyrstu (21) 24-27-29-31 (33) lykkjur (½ bakstykki), setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið (42) 48-54-58-62 (66) lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir síðustu (21) 24-27-29-31 (33) lykkjur (½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = (92) 104-120-128-140 (148) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hlið, mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir annarri erminni. Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki fram að prjónamerki – umferðin byrjar nú við prjónamerkið. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist (5) 8-11-12-14 (16) cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um (12) 16-16-20-20 (20) lykkjur jafnt yfir = (104) 120-136-148-160 (168) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca (20) 24-28-30-33 (36) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykkin á sokkaprjóna 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = (38) 44-48-52-56 (58) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls (0) 2-2-3-4 (4) sinnum á hæðina = (38) 40-44-46-48 (50) lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist (4) 8-10-13-15 (18) cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (2) 0-0-2-0 (2) lykkjur jafnt yfir = (36) 40-44-44-48 (48) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca (7) 11-13-16-18 (21) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í stykkið að aftan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Olivia wrote:
Hallo, ich stricke zum ersten Mal einen Pullover. Nun habe ich gleich eine Frage zum Anfang. In der Anleitung steht "Anschlag: (70) 74-78-82-86 (94) Maschen auf Rundnadel Nr. 2,5 mit DROPS Baby Merino. 1 Rück-Reihe links stricken. Die Rückreihe soll also links gestrickt werden, aber was ist mit der Hinreihe? Wird die rechts gestrickt oder zählt die Aufnahme als Hinreihe? Über eine Antwort würde ich mich freuen. Danke und Grüße!
25.02.2024 - 04:09DROPS Design answered:
Liebe Olivia, bei diesem Pullover stricken Sie zuerst 1 Reihe links, diese Reihe ist eine Rückreihe; die nächste Reihe wird dann eine Hinreihe sein, und wird mit Bündchen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
26.02.2024 - 08:59Anne Christine wrote:
Hei, får ikke antall masker på ermet til å stemme. Starter med 14 masker, (str 18 mndr) øker 9 ganger (nå til sammen 32 masker) Bærestykkeøkning 5 ganger. Vil det da ikke være 42 masker til ermet? I oppskriften skal man sette 48 masker til ermet på en tråd?
06.11.2023 - 15:12DROPS Design answered:
Hei Anne Christine. Det er bare å følge maskeantallet som er oppgitt i oppskriften. Noen ganger vil man ta masker fra forstykket/bakstykket og sette det til erme (etter man er ferdig økt) og det er gjort i denne oppskriften. mvh DROPS Design
13.11.2023 - 09:47Signe wrote:
Det ville være rart, hvis der havde været et foto af bagsiden også, da det jo er der en væsentlig del af blusens detaljer er.
02.09.2023 - 14:11Renee wrote:
Jag förstår inte riktigt hur jag ska lägga mina sista 4 och första 4 rätstickade maskor på varandra och sedan sticka ihop det. Jag är på delan vid ärmökning och sprund mitt bak och mitt arbete (1-3mån) mäter 7cm från upplggningskant. Det finns ingen video som visar hur man stickar ihop det och de första två varv efter det. Jag förstår inte hur man gör på en rundsticka.
20.08.2023 - 22:04DROPS Design answered:
Hei. Når arbeidet måler 7 cm fra skal kantmaskene strikkes sammen, samtidig skal det strikkes rundt. Fra retten, strikk 4 masker riller, deretter glattstrikk til det gjenstår 4 masker på slutten av pinnen. Legg de 4 rillemaskene fra begynnelsen av pinnen ved siden av 4 rille maskene på slutten av pinne.Nå skal du strikke 1. rillemaske fra begynnelsen av pinnen sammen med 4. siste maske på pinnen (2 masker sammen = 1 maske), så strikker du 2. maske sammen med 3. siste maske, deretter 3. maske sammen med nest siste maske og til slutt siste maske sammen med 4. maske. Du har nå strikket 2 og 2 masker sammen og samtidig felt 4 masker. De 8 rillemaskene = 4 masker.
21.08.2023 - 14:20Carmen Arteaga wrote:
Hola tengo la misma duda que Line.no entiendo como se cierra el borde de la abertura de espalda, no hay un video explicativo? muchas gracia , muy lindos patrones
20.05.2023 - 22:36DROPS Design answered:
Hola Carmen, no, no tenemos vídeos explicativos de esta parte. Para cerrar el borde de la apertura, colocar la cenefa de los ojales sobre la cenefa de los botones. Ahora, trabajar juntos el 1º punto de la cenefa de los ojales junto con el último punto de la cenefa de los botones, trabajar juntos el 2º punto de la cenefa de los ojales con el penúltimo punto de la cenefa de los botones. Continuar de esta manera hasta haber trabajado todos los puntos juntos.
21.05.2023 - 19:03Maria wrote:
Hi, tension mentions the dimension but not the needles. What needles does one knit 24stitchesx32rows to achieve 10x10?
19.11.2022 - 14:51DROPS Design answered:
Dear Maria, the smaller needles are only used for the rib. The gauge is worked with the needles for the main pattern, that is, the 3mm needles. Happy knitting!
21.11.2022 - 00:42Lynn wrote:
Hallo zusammen, Bei den Ärmelzunahmen schreibt ihr (wenn ich es richtig verstehe), dass man nach dem 1. und 3. und vor dem 2. und 4. Makierer zunehmen soll, so wie es in Zunahmetipp 2 beschrieben ist. Zunahmetipp 2 bezieht sich aber auf links zugenommene Maschen und ich stricke hier ja rechts in Runden (ich habe bereits zur Runde geschlossen). Ist das richtig so? Oder muss ich mich an Zumahmetipp 1 halten? Vielleicht könnt ihr helfen! Danke im Voraus, Viele Grüße, Lynn
27.09.2022 - 15:28DROPS Design answered:
Liebe Lynn, Zunahmetipp-2 gilt nur wenn man in Reihen strickt = wie man bei den Rückreihen zunimmt, wenn Sie in Runden stricken, dann folgen Sie Zunahmetipp-1 bei jeder Runde (= immer bei den Hinreihen). Stimmt aber Ihre Maschenprobe? Die Arbeit wird nach 3-4 cm in Runden gearbeitet, dh nach Ärmelzunahmen. Viel Spaß beim stricken!
27.09.2022 - 16:05Mathilda Byrne wrote:
Could you please explain this part of the pattern? 4 stitches in GARTER STITCH – read description above, * knit 2, purl 2 *, work from *-* until there are 6 stitches left, knit 2 and 4 stitches in garter stitch. I assume I do the garter k2, p2 until there is 6 stitches left, but then Im confused by the next part could you help please?
27.09.2022 - 14:51DROPS Design answered:
Dear Mrs Byrne, start row with 4 sts in garter stitch, then work ribbing (K2,P2) over all stitches until 6 sts remain before end of row, and finish with K2, 4 sts in garter stitch. From WS work: 4 sts in garter stitch, (P2, K2) until 6 sts remain, finish row with P2, and 4 sts in garter stitch. Happy knitting!
27.09.2022 - 15:59Line wrote:
Est-ce que vous pourriez m'envoyer un vidéo-tutoriel pour savoir comment procéder pour: Poser les 4 mailles de bordure devant au début du rang au-dessus de ces 4 dernières mailles, en plaçant celle avec les boutonnières au-dessus. Tricoter ensemble 2 par 2 à l'endroit les mailles des deux bordures (on diminue 4 mailles). Merci !
14.09.2022 - 16:04DROPS Design answered:
Bonjour Line, nous n'avons pas encore de vidéo pour cette technique, vous devez maintenant diminuer les mailles de l'une des bordure de boutonnage (et non celles de la bordure devant, correction faite, merci pour votre retour), ainsi, vous allez poser les 4 mailles de la bordure sur les 4 mailles de l'autre bordure et tricoter ces mailles ensemble 2 par 2 à l'endroit: tricotez la 1ère m de chacune des bordure ensemble, puis la 2ème m de chacune des bordures ensemble, et ainsi de suite. En espérant que ce soit un peu plus clair ainsi. Bon tricot!
14.09.2022 - 16:37Line wrote:
Lorsqu'on est rendu à faire augmentation des manches, doit-on faire selon les indications avec augmentation-1 qui donne information des augmentations à l'endroit. ?
14.09.2022 - 03:19DROPS Design answered:
Bonjour Line, vous devez suivre augmentation-1. Merci de l'avoir notifie. Nous allons corriger cela. Bon tricot!
14.09.2022 - 08:11