Prairie Rose Cardigan |
||||
|
|
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-4 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki og ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um hálsmál þegar fækkað er um 1 lykkju): Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í sléttprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 LYKKJUR Í SLÉTTPRJÓN ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 LYKKJUR Í SLÉTTPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 síðustu lykkjur í sléttprjóni (= 1 lykkja færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við ystu 3 lykkjur í umferð (frá réttu). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt saman við þriðju síðustu lykkjuna í umferð. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 5, 14, 24, 33 og 43 cm. M: 5, 15, 25, 35 og 45 cm. L: 6, 16, 26, 36 og 46 cm. XL: 6, 14, 23, 31, 40 og 48 cm. XXL: 6, 15, 23, 32, 40 og 49 cm. XXXL: 6, 15, 24, 33, 42 og 51 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka. Síðan eru stykkin sett saman og framstykkin og bakstykkið eru prjónuð fram og til baka frá miðju að framan og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkin prjónuð til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 95-105-113-127-141-153 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur – ATH: Fyrsta og síðasta lykkjan í umferð er prjónuð slétt frá réttu og brugðið frá röngu. Prjónið þar til stroffið mælist 6 cm, endið eftir umferð frá röngu og geymið stykkið og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 55-61-65-71-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm, endið stroffið eftir umferð frá röngu, geymið stykkið og prjónið hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 55-61-65-71-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) út umferðina. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Endið stroffið eftir umferð frá röngu. Setjið nú stykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið hægra framstykkið, bakstykkið og vinstra framstykkið á sama hringprjón 5 = 205-227-243-269-299-323 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um 53-59-63-69-79-83 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 152-168-180-200-220-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 41-45-48-53-58-63 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 70-78-84-94-104-114 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, prjónamerkin eru notuð þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 18-18-19-19-20-20 cm = 160-176-188-208-228-248 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið 41-45-48-51-54-57 lykkjur eins og áður (framstykki), fellið af 4-4-4-8-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-78-84-90-96-102 lykkjur sléttprjón (bakstykki), fellið af 4-4-4-8-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 41-45-48-51-54-57 lykkjur eins og áður (framstykki). Bakstykkið og framstykkin er prjónuð til loka hvert fyrir sig. BAKSTYKKI: = 70-78-84-90-96-102 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 28-30-30-32-32-34 lykkjur fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu því kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum – sjá ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: Setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 5-5-6-7-7-8 lykkjur á þráð 3 sinnum og síðan síðustu 4-7-7-6-9-8 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð. Setjið til baka 19-22-25-27-30-32 lykkjur af þræði á hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en til að koma í veg fyrir göt þar sem snúið er við mitt í stykkinu, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið brugðið saman við fyrstu lykkju frá vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti og að efst á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 41-45-48-51-54-57 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm, setjið ystu 13-14-14-15-15-16 lykkjur mitt að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu því kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 1 sinni. Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum – munið eftir ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandiöxl alveg eins og á bakstykki. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af og settar á þráð, setjið 19-22-25-27-30-32 lykkjur af þræði til baka á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu alveg eins og á bakstykki og fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti og að efst á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki. ERMI: Fitjið upp 36-38-38-40-42-42 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 2-2-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 38-40-40-44-46-46 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 19-20-20-22-23-23 lykkjur. Prjónamerkið merkir mitt undir ermi og mitt á ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, prjónamerkin eru notuð þegar auka á út. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir sléttprjón eftir stroffið, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-7-8 sinnum á hæðina = 62-64-68-72-74-78 lykkjur (skiptið e.t.v. yfir í stuttan hringprjón 5 þegar nægilega margar lykkjur eru í umferð). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 51-49-49-47-44-42 cm. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka frá miðju undir ermi, þar til ermin mælist 52-50-50-49-48-47 cm, þ.e.a.s. það er klauf ca 1-1-1-2-4-5 cm efst á erminni. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. Saumið ermakúpuna við handveg innan við ystu lykkjuna á framstykki/bakstykki. Síðan er klaufin efst á erminni saumuð við botninn á handveginum – sjá teikningu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu og prjónið upp ca 86 til 100 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út jafnt yfir til 103-107-109-111-115-119 lykkjur (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, fram og til baka í 4 cm. Fellið aðeins laust af. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (49)
Thea wrote:
Hvordan kan jeg strikke den her i XS?
24.05.2024 - 19:08Mila wrote:
The instructions about the shoulders are very unclear. I have no clue what to do here.
09.04.2024 - 15:42DROPS Design answered:
Dear Mila, you will work short rows on shoulder stitches to shape diagonal shoulders: slip the first stitches at the beg of row from armhole (from RS on right shoulder back piece/ on left shoulder front piece and from WS on left shoulder back piece/on right shoulder front piece). This video shows (for another pattern, this means with a different number of stitches) how to work such a diagonal shoulder. Happy knitting!
10.04.2024 - 07:57Sara wrote:
Ang sned axel. Jag får hur jag än gör ändå stora hål. Kan ni beskriva mer tydligt vilken tråd som ska lyftas och mellan vilka maskor? Har läst beskrivningen 20 ggr och testat fram och tillbaka men tycker inte det blir bra.
02.04.2024 - 21:03DROPS Design answered:
Hei Sara. Husk å strikke tråden som hentes opp vridd vrang sammen med første maske på venstre pinne. Et lite hull vil det nok alltid bli. mvh DROPS Design
08.04.2024 - 11:54Sara wrote:
Jag förstår inte det här med knapphålet helt. Den beskrivning som finns i mönstret ger inte mig ngt knapphål, har testat flera ggr och repat upp osv osv. Sedan följt instruktion i länkad film, det är då inte samma lösning som står i texten. Den ger ett knapphål men det blir väldigt trångt för rekommenderad knapp. Kan ni förtydliga hur man ska göra? Samt vore bra om mönster och instruktionsfilm matchade. Nu blir det väldigt förvirrande.
08.03.2024 - 16:55DROPS Design answered:
Hej Sara. Det ska bli ett knapphål om du följer mönstret, men det finns väldigt många olika sätt att göra knapphål på. Tycker du inte detta blir bra så kan du testa ett annat sätt. Denna video visar ett annat sätt där du får ett större knapphål. Mvh DROPS Design
13.03.2024 - 09:42Sara wrote:
Har ni missat info på svenska delen med rätstickning. När jag läser den norska och eng så verkar det som man ska sticka dubbla varv eller liknande?
19.02.2024 - 15:21DROPS Design answered:
Hej Sara. Nej det är inget som saknas i den svenska översättningen. I detta mönster används bara uttrycket rätstickning ( i vissa andra används "1 rille" på norska och det översätts med 2 varv rätstickning på svenska), så följ bara mönstret så blir det riktigt. Mvh DROPS Design
21.02.2024 - 08:45Sara wrote:
När ska rundsticka 5 som är 40 Respektive 80 cm användas?
16.02.2024 - 21:35DROPS Design answered:
Hej Sara, du bruger den lange når du strikker fram och bakstycke og den korte til ærmerne :)
23.02.2024 - 10:45Jagna wrote:
Cześć Jak zamykać oczka na podkroje rękawów? Nigdzie we wzorze tego nie znalazłam. Jaka metodą?
31.01.2024 - 06:43DROPS Design answered:
Cześć Jagno, zamykasz oczka na podkroje rękawów tak samo jakbyś kończyła robótkę. Zobacz video TUTAJ. Pozdrawiamy!
31.01.2024 - 08:03Lisa wrote:
Hej! Jag har kommit så långt som till ärmen nu, och kan se att det står att man ska sticka ett sprud på 1 cm mitt under ärmen - men borde det inte vara mitt på ärmen? Eller är jeg helt fel på det? Tänker så det blir rätt när man syr fast ärmen med den andra delen.
13.01.2024 - 15:41DROPS Design answered:
Hej Lisa, sprundet skal passe ind nederst i ærmegabet. Du kan se på skitsen hvor det skal sys sammen :)
16.01.2024 - 12:10Juliana wrote:
Guten Tag, ich würde Sie gern um Hilfe beim Stricken der Vorderteilen bitten. In der Anleitung ist geschrieben, dass bei 42 cm bei S-Größe sollen die Maschen für Halsausschnitt stillgelegt werden. Gleichzeitig aber sollte noch ein Knopfloch bei der Länge von 43 cm einarbeitet werden. Ist dann das Knopfloch in der Halsblende? Danke für die Unterstützung. Liebe Grüße
19.11.2023 - 22:08DROPS Design answered:
Liebe Juliana, ja genau, das letzte Knofploch liegt an der Halsblende. Viel Spaß beim stricken!
20.11.2023 - 11:24C S wrote:
Er nået til venstre forstykke ved indtagning til hals og skråskulder. Men jeg har ikke helt knækket koden til det i skriver. Hvis de 13 første masker (ved kanten) sætte på snor, hvordan skal det så foregå med at der først lukkes 3 m af også 2 m af og derefter indtagninger i alt 4 gange. Hvordan kan det alt i alt blive reduceret til 19 m til de skrå skuldre som bagstykket også har ? På forhånd tak ! Håber i kan hjælpe, så den kan blive færdig :)
13.09.2023 - 20:55