DROPS Melody uni colour 71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide |
1364.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Melody uni colour 71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide 1364.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= natur | |
= vanillugulur | |
= sinnep | |
= beige | |
= þoka | |
= púðurbleikur | |
= ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Pastel Spring Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-8 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvort fyrir sig og eru saumuð saman eins og útskýrt er í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 79-85-91-97-105-117 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur í DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið sléttprjón í röndum eftir mynsturteikningu A.1, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 7-7-7-7-7-9 lykkjur jafnt yfir = 72-78-84-90-98-108 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2 á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af 4-6-7-8-10-13 lykkjur í byrjun á hvorri af 2 næstu umferðum = 64-66-70-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 22-24-24-26-28-28 lykkjur af fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-20-22-23-24-26 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 42-46-48-52-56-60 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur í DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig (frá hlið og frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið sléttprjón í röndum eftir mynsturteikningu A.1, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 5-6-5-6-6-5 lykkjur jafnt yfir = 37-40-43-46-50-55 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2 á hæðina. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg í hlið. Fellið af 4-6-7-8-10-13 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu = 33-34-36-38-40-42 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, setjið fyrstu 9-10-10-11-12-12 lykkjur í byrjun á umferð frá röngu við miðju að framan á þráð (prjónið þær fyrst), fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu. Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju 2 sinnum = 20-20-22-23-24-26 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp (frá réttu) ca 70 til 84 lykkjur með litnum natur á hringprjón 5, innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið síðan frá röngu þannig (frá neðri kanti): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur að framan mælist ca 4 cm. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 42-46-48-52-56-60 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur í DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig (frá miðju að framan og frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið sléttprjón í röndum eftir mynsturteikningu A.1, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 5-6-5-6-6-5 lykkjur jafnt yfir = 37-40-43-46-50-55 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2 á hæðina. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg í hlið. Fellið af fyrstu 4-6-7-8-10-13 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu = 33-34-36-38-40-42 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, setjið fyrstu 9-10-10-11-12-12 lykkjur í byrjun á umferð frá réttu við miðju að framan á þráð (prjónið þær fyrst), fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu. Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju 2 sinnum = 20-20-22-23-24-26 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp (frá réttu) ca 70 til 84 lykkjur með litnum natur á hringprjón 5, innan við 1 kantlykkju meðfram hægra framstykki, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið síðan frá röngu þannig (frá hálsmáli og niður): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff, en eftir ca 2 cm, fellið af fyrir 4-4-4-5-5-5 hnappagötum. Neðsta hnappagatið á að sitja ca 10 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að sitja ca 7-8 cm frá hálsmáli, staðsetjið þau hnappagöt sem eftir eru jafnt á milli þessa (fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli er prjónaður). Fellið af fyrir hnappagötum með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og síðan eru prjónaðar 2 lykkjur saman. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur að framan mælist ca 4 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 52-54-56-58-60-62 lykkjur á sokkaprjóna 5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum, þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2 að loka máli. Þegar stykkið mælist 31-29-29-28-27-24 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4 cm millibili alls 4 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Þegar ermin mælist 47-45-44-44-42-40 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 49 cm í öllum stærðum, þ.e.a.s. það er klauf 2-4-5-5-7-9 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 5 og litinn natur, byrjið frá réttu og prjónið upp ca 69 til 81 lykkjur í kringum hálsmál (einnig yfir kanta að framan á hvoru framstykki), lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkjur. Prjónið frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið nú af fyrir síðasta hnappagatinu í byrjun á næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður. Haldið áfram þar til stroff í kanti í hálsmáli mælist 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (19)
Thale O wrote:
Hvilken str er den på bildet strikket i? Jeg bruker M/L til vanlig. Vil en L passe meg da, eller burde man gå opp en str?
23.02.2024 - 13:54DROPS Design answered:
Hei Thale, Det finnes en målskisse på bunnen av oppskriften, med alle mål til de forskjellige størrelsene. God fornøyelse!
28.02.2024 - 11:02Barbara wrote:
Ho bisogno ancora del vs aiuto: Quando la manica misura 47-45-44-44-42-40 cm, lavorare l’arrotondamento della manica in piano (dal centro sotto la manica) con i ferri circolari fino alla fine del lavoro. Non riesco a capire cosa devo fare. Grazie mille
11.02.2024 - 01:02DROPS Design answered:
Buongiorno Barbara, da quel punto in avanti deve lavorare le maniche in piano, in ferri di andata e ritorno e non più in tondo. Buon lavoro!
11.02.2024 - 13:25Barbara wrote:
Modello 231/8 Non riesco a capire questo passaggio; “mettere in sospeso le prime 9-10-10-11-12-12 maglie all’inizio del ferro dal diritto del lavoro verso il centro davanti (lavorarle prima), poi intrecciare per il collo all’inizio di ogni ferro dal diritto del lavoro….” Grazie per l’aiuto
21.01.2024 - 18:27DROPS Design answered:
Buonasera Barbara, sono le maglie che serviranno poi per il collo: le deve lavorare e poi mettere in sospeso su un fermamaglie o filo di scarto. Buon lavoro!
24.01.2024 - 16:49Ida wrote:
Vart ser man hur mycket garn som behövs till mönstret?
16.10.2023 - 10:17DROPS Design answered:
Hej Ida, överst i mönstret under GARNÅTGÅNG, om du stickar de 2 minsta storlekarna behöver du 100g natur, 100g dimma, 100g vaniljgul, 50g beige, 50g puder rosa, 50g senap
17.10.2023 - 13:33Jessie Ankersø wrote:
Hvad skal de 10 masker der sættes til hvile på forstykkerne?
26.06.2023 - 21:29DROPS Design answered:
Hej Jessie, dem bruger du igen når du strikker halskanten :)
29.06.2023 - 14:26Isa wrote:
Jag tyckte mönstret var väldigt litet i storlek. Jag fick tidigt känslan av detta så stickade i storlek XXL, jag har i vanliga fall M/L och som färdig är den inte alls så luftig som på bild :(
19.06.2023 - 09:57Vibeke wrote:
Hvad er en ærmekuppel og hvordan strikker man sådan en, det står der intet om i opskriften.
12.06.2023 - 08:55DROPS Design answered:
Hei Vibeke. Ermkuppel er det siste du strikker når du strikker ermet, den delen du strikker frem og tilbake. Slik står det i oppskriften: Når ærmet måler 47-45-44-44-42-40 cm, strikkes ærmekuplen frem og tilbage (fra midt under ærmet) på rundpind til færdigt mål. Strik videre til ærmet måler ca 49 cm i alle størrelser, dvs det er en slids på 2-4-5-5-7-9 cm øverst på ærmet. Luk af. Se også på detaljeskissen til målskissen og forklaringen til A, B, a og b. mvh DROPS Design
12.06.2023 - 13:37Bente Solskinn wrote:
Vil tru det skal strikkes opp 69-81 masker kun rundt hals. At det i tillegg kommer masker fra forstykker?
15.02.2023 - 11:38DROPS Design answered:
Hej Bente, maskerne fra trådene indgår i de 69-81 masker :)
16.02.2023 - 09:07Marlies wrote:
Ik begrijp niet goed hoe ik de knoopsgaten maak. 1 omslag en dan. 2 samenbreien geeft een klein gaatje. Op de foto lijkt het knoopsgat een aantal naalden door te lopen Hoe werkt dit?
09.02.2023 - 19:10Kari Engen wrote:
Se forrige Mail, mente felling på bakstykket, hvor det står sett masker på tråd, men forstår ikke resten av halsfelling på bakstykket.
30.01.2023 - 11:23DROPS Design answered:
Hei Kari. I f.eks str. S og når arbeidet måler 50 cm, har du 64 masker og nå skal de midterste 22 masker felles. Strikk 21 masker, fell av 22 masker til hals, strikk de neste 21 masker. Nå strikkes hver skulder ferdig for seg selv. Snu og strikk 21 masker, snu og fell av 1 maske på neste pinne fra halsen = 20 masker på skulderen. Fell av når arbeidet måler 52 cm. Strikk den andre skulderen på samme måte. mvh DROPS Design
30.01.2023 - 14:39