Christmas Mice |
|||||||
|
|
||||||
Prjónaðar mýs / jólaskraut með norrænu mynstri og röndum úr DROPS Fabel. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1548 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. EYRA: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* í sömu lykkju þar til alls 13 lykkjur eru fyrir eyra. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka yfir eyrnalykkjurnar þannig: snúið stykkinu, prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina, snúið stykkinu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) = 1 lykkja eftir. Prjónið síðan eins og útskýrt er í uppskrift. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 11. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- MÚS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá nefi að miðju á baki. Músin er fyllt með vatti. Síðan er skottið prjónað eins og hringlaga snúra. HÖFUÐ: Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum svartur í DROPS Fabel. Skiptið 4 lykkjunum niður með 1 lykkju á hverjum prjóni (prjónið með 5. prjóninum). Prjónið í hring eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1. * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 8 lykkjur (2 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 2: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat). Skiptið yfir í litinn ljós grár. UMFERÐ 3: Prjónið slétt. UMFERÐ 4: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 12 lykkjur (3 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 5: Prjónið slétt. UMFERÐ 6: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 20 lykkjur (5 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 7: Prjónið slétt. UMFERÐ 8: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 28 lykkjur (7 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 9: Prjónið slétt. UMFERÐ 10: Í þessari umferð eru augun prjónuð, þ.e.a.s. umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 8 lykkjur með litnum ljós grár, 1 lykkja með litnum svartur, 3 lykkjur með litnum ljós grár, 1 lykkja með litnum svartur, 15 lykkjur með litnum ljós grár. Síðan er prjónað með litnum ljós grár. UMFERÐ 11: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 36 lykkjur (9 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 12: Prjónið slétt. UMFERÐ 13: Prjónið slétt. UMFERÐ 14: Í þessari umferð eru eyrun prjónuð, þ.e.a.s. umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 9 lykkjur slétt í næstu lykkju (þ.e.a.s. fyrsta lykkjan í 2. umferð), prjónið EYRA – sjá útskýringu að ofan, prjónið 7 lykkjur slétt, í næstu umferð (þ.e.a.s. lykkja í 2. umferð) prjónið EYRA, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. UMFERÐ 15 * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 44 lykkjur (11 lykkjur á hverjum prjóni). UMFERÐ 16: Prjónið slétt. Prjónið síðan peysu með röndum eða peysu með norrænu mynstri eins og útskýrt er að neðan. PEYSA MEÐ NORRÆNU MYNSTRI-1 (grunnlitur í litnum ljós perlugrár, «doppur» í litnum rauður): Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 4 umferðir í stroffprjóni. Prjónið 1 umferð slétt með litinn ljós perlugrár þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum rauður. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan. PEYSA MEÐ NORRÆNU MYNSTRI-2 (grunnlitur í litnum rauður, «doppur» í litnum ljós perlugrár): Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 4 umferðir í stroffprjóni. Prjónið 1 umferð slétt með litinn rauður þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum ljós perlugrár. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan. PEYSA MEÐ NORRÆNU MYNSTRI-3 (grunnlitur í litnum rauður, mynstur í litnum ljós perlugrár): Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 4 umferðir í stroffprjóni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum rauður. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan. PEYSA MEÐ RÖNDUM-1 (stroffkantur í litnum ljós perlugrár): Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.4 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum ljós perlugrár. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan. PEYSA MEÐ RÖNDUM-2 (stroffkantur í litnum rauður): Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.5 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum rauður. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan. BAKHLIÐ Á MÚS: = 48 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár. Snúið stykkinu og festið alla þræði. Snúið stykkinu til baka að réttu og fækkið lykkjum þannig: UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum = 36 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum = 24 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur eftir. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. Fyllið músina með vatti. UMFERÐ 7: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur eftir. UMFERÐ 8: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 3 lykkjur eftir. Prjónið síðan skottið eins og útskýrt er að neðan. SKOTT: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir 3 lykkjur með litnum ljós grár. * Færið lykkjurnar til baka að byrjun á prjóni, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir 3 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til skottið mælist ca 10 cm. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum lykkjurnar. Festið þráðinn vel og herðið aðeins að áður en hann er festur þannig að skottið beygist aðeins út. STREKKING: Til að eyrun standi fallega upprétt og verði stíf, er hægt að dýfa þeim í sykurvatn eða litlausan gosdrykk og látin þorna í réttu formi. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Alysa wrote:
Gama Казино: Шанс на Уникальные Выигрыши казино гама
22.01.2024 - 17:10Wanda wrote:
If the pattern available in English
01.12.2023 - 03:22Kate Painter wrote:
I do not understand how to create the ears using a repetition of K1 Y over until you have 13 stitches. Do you turn the work and purl and work up to 13 stitches? It doesn’t look like that’s what you do in the photo of the finished item. Thanks so much! I’m stuck!
04.12.2022 - 06:23DROPS Design answered:
Dear Mrs Painter, when you have the 13 sts for the ear on the right needle, turn and purl 11 sts, turn, knit 9 sts, turn, purl 7 sts, turn, knit 5 sts, turn and purl 9, turn and cast off the 13 sts making 1 yarn over after every 2nd stitch (1 st left). Happy knitting!
06.12.2022 - 09:24Kathy Bone wrote:
I do not understand how to make the ears. Is there a video tutorial explaining it better? Thank you.
11.11.2022 - 22:18DROPS Design answered:
Dear Kathy, all relevant available videos are under the pattern; there is no specific video for the ears. The technique used is the short rows technique, which you can find a video for here: https://www.garnstudio.com/video.php?id=66&lang=en. Happy knitting!
14.11.2022 - 00:02Abbie D wrote:
Is there a way to make this pattern larger? I wanting to have the circumference to be 12in or bigger when finished. My grandmother made a mouse like this (but bigger) for me when I was a child, and I would love to remake it.
14.03.2022 - 18:59DROPS Design answered:
Dear Annie D, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but you can play with the tension and number of strands worked, for example try a swatch with 2, 3 or 4 strands, tension will be different and make the mouses larger/bigger. Your DROPS store can for sure also assist you (even per mail or telephone) if you need more help . Happy knitting!
15.03.2022 - 09:49Petra wrote:
Hallo, leider komme ich mit dem Ohr nicht klar. Wie genau strickt man das? Bei mir gibt das ein riesen Loch.
20.01.2022 - 08:44DROPS Design answered:
Liebe Petra, ja ein Loch will unten an dem Ohr entstehen, aber bei der nächsten Runde, können Sie die Maschen extra enger stricken, oder am Ende dieses Loch zusammennähen. Viel Spaß beim stricken!
20.01.2022 - 09:38Carmen-Gabriela wrote:
Oh ja, Danke! Der Hund ist hübsch. Nun habe ich eine Raupe bei Spielsachen (anhand ihres bebilderten Vorschlages beim Hund) entdeckt; diese ist auch süß als langes Zugluft-Tier. Prima!:)
23.12.2021 - 18:52Carmen-Gabriela wrote:
Wie süüüß:)! Ich könnte mir diese Mäuse in größer und länger gut als Zugluft-Mäuse vor die Tür vorstellen. Ich habe neulich einen liegenden Zugluft-Wichtel (= Zwerg) fertig zum Kauf gesehen, aber für 50,-- €!! Haben Sie Zugluft-Dackel, - Mäuse, -Zwerge oder ähnliches? - Sonst setze ich einer Schlummerrolle Ohren auf.
21.12.2021 - 18:31DROPS Design answered:
Liebe Carmen-Gabriela, vielleicht kann Ihnen dieses Modell inspirieren? Hier finden Sie alles mit "Santa", einschl. Puppen; und hier finden Sie unsere Mäuse. Hoffentlich kann das Ihnen inspirieren! Viel Spaß beim stricken!
22.12.2021 - 07:01Deleuze Françoise wrote:
Merci pour ce cadeau. Mes chats vont adorer ces souris en habits de fête. Mouche, Crevette et Louloutte.
07.12.2021 - 11:29Heidemarie Küspert wrote:
Hallo, die Weihnachtsmäuse sind sehr schön, leider fehlt aber das Diagramm. Es geht ja auch ohne zum Stricken, dann einfach in Streifen.
06.12.2021 - 08:45