Winter Companions |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónað eyrnaband og hálsskjól fyrir börn úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 41-23 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR (á við um eyrnaband): Til að eyrnabandið komi til með að sitja vel á höfðinu, þá verður að prjóna ca 7-8 cm styttra en ummál höfuðs. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift Endurtakið umferð 2 og 3. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3 * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið umferð 2 og 3. MYNSTURTEIKNING: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning er notuð við frágang á eyrnabandinu. MYNSTUR (á við um hálsskjól): Sjá mynsturteikningu A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Endarnir eru síðan saumaðir saman þannig að það myndast kaðall fyrir miðju framann á eyrnabandinu. EYRNABAND: Fitjið upp 15-15-17-19 lykkjur aðeins laust á prjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka) – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Fyrsta kantlykkjan í umferð er alltaf lyft af prjóni, síðasta kantlykkjan í umferð er prjónuð slétt. Þetta er gert bæði frá réttu og frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til eyrnabandið mælist ca 40-42-44-46 cm frá uppfitjunarkanti – sjá LEIÐBEININGAR. Skiptið yfir á prjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Stykkið er nú rétthyrningur, brjótið rétthyrninginn saman á lengdina þannig að hann liggi tvöfaldur – sjá mynsturteikningu A.1. Nú á að leggja löngu hliðarnar á eyrnabandinu inn í hvora aðra í lögum án þess að snúa stykkinu – sjá mynsturteikningu A.2. Endarnir á eyrnabandinu liggja nú til skiptis innan í og utan á hvorum öðrum og endarnir liggja kant í kant – sjá mynsturteikningu A.3. Nú á að sauma í gegnum öll lögin þannig: Saumið meðfram strikuðu línunni í mynsturteikningu A.4 (þ.e.a.s. yfir endana á stykkinu), saumið með þéttu spori með 1 spori í hverja lykkju – það er mikilvægt að sauma í gegnum öll lögin þannig að saumurinn sjáist ekki þegar stykkinu er snúið við. Klippið þráðinn frá og festið. Snúið stykkinu þannig að saumurinn sé að innanverðu á eyrnabandinu. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp aðeins laust 62-62-74-86 lykkjur á hringprjóna 4 með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir). Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk. Afgangurinn af stykkinu er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund (það er fitjað upp svona til að uppfitjunarkanturinn dragist ekki saman). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Prjónið síðan þannig: * Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 5-6-7-8 cm með KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring) – sjá útskýringu að ofan, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.5 *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú skiptist stykkið í hvorri hlið þannig að bæði stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan: Setjið næstu 31-31-37-43 lykkjur á hringprjón 4,5 og setjið þær 31-31-37-43 lykkjur á þráð. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka) með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þar til stykkið mælist 20-23-26-29 cm frá uppfitjunarkanti, næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkjum, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan stroff fram og til baka í 2 cm með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 22-25-28-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjóna 4,5 og prjónið alveg eins og fyrra stykki. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Susanne Andersen wrote:
Der mangler en forklaring på mønster A5. Kan se, at der er svaret på islandsk i januar. Vil I ikke gøre det på dansk også. Kan også se, at der er en anden 15.9. , der efterlyser det samme. Kom nu please☀️
02.10.2022 - 07:29DROPS Design answered:
Hej Susanne, det skal vi få lagt ud, den tomme rude er ret fra retsiden og vrang fra vrangen, den rude med - er vrang fra retsiden og ret fra vrangen :)
03.10.2022 - 14:46Line wrote:
Au début du bandeau, il est indiqué de monter avec les aiguilles et 1 fil de chaque qualité (= 2 fils). Que signifie ? Est-ce que l'on doit doubler le fil ?
26.09.2022 - 17:18DROPS Design answered:
Bonjour Line, le bandeau se tricote entièrement avec 1 fil DROPS Alpaca + 1 fil DROPS Kid-Silk (cf échantillon), autrement dit avec les 2 laines tricotées ensemble. Bon tricot!
27.09.2022 - 08:22Kristine wrote:
Jeg tror der mangler en oversigt over symbolerne i A5 hvordan den skal strikkes
14.09.2022 - 18:25DROPS Design answered:
Hej Kristine, det skal vi få lagt ind :)
15.09.2022 - 15:20Helga wrote:
Ég er að prjóna hálskjólið en ég er ekki að skilja þegar þeir segja að maður eigi að prjón A5. Skil ekki myndina eða hvað ég á að gera. Væri gott að fá betri útskýringu eða myndband sem gæti útskýrt þetta betur. Mbk
11.01.2022 - 01:31DROPS Design answered:
Blessuð Helga. Ör: Prjónið 1 umferð slétt (eftir klukkuprjón, prjónið lykkjur og uppslátt saman) og prjónið 4 umferðir sléttprjón (= 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið) og endið með 1 umferð slétt. Gangi þér vel.
24.01.2022 - 10:19Bente L Knutsen wrote:
Hei jeg strikker denne halsen , men forstår ikke helt. Skal jeg strikke M5 hva er det? Hvor lang skal den være før jeg deler den? Mvh bente l knutsen
04.01.2022 - 19:04DROPS Design answered:
Hei Bente. Når du har strikket vrangbord i 2 cm, byttes det til rundpinne 4,5 og det strikkes 5-6-7-8 cm med Helpatent med kast (det strikkes fortsatt rundt). Deretter byttes det til rundpinne 4 og nå strikkes det etter diagram A.5 (diagrammet ser du sammen ved skissene A.1-A.4). Så strikkes det 5-6-7-8 cm med Helpatent med kast på pinne 4,5 1 gang til og deretter byttes det til rundpinne 4 og nå strikkes det etter diagram A.5 1 gang til. Nå skal arbeidet deles, hvor lang den er kommer an på hvilken str. du strikker. mvh DROPS Design
14.01.2022 - 13:12