Edge of the Woods |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-51 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d.20) = 6,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, prjónið í þessu dæmi 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 132-136-140-144-148-152 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3 með litnum brúnn í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 11 cm. Síðar er kanturinn í hálsmáli brotinn saman tvöfaldur og við frágang verður hann ca 5 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 5 lykkjurnar (hér er kanturinn saumaður síðar niður), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 122-126-130-134-138-142 lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA, prjónið síðan stroff eins og áður yfir næstu 4 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni Skiptið yfir á hringprjón 4. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 5 lykkjur, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir í umferð (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 102-106-110-114-118-122 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 2 cm með litnum brúnn. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21-21-25-25-29-33 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 123-127-135-139-147-155 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur halda áfram í garðaprjóni). Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 30-31-33-34-36-38 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Kantlykkjur eru prjónaðar í sama lit og fyrsta/síðasta lykkjan í mynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Ör-1: Aukið út 42-50-54-62-66-70 lykkjur jafnt yfir = 165-177-189-201-213-225 lykkjur (nú er pláss fyrir 27-29-31-33-35-37 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út 46-50-46-58-62-74 lykkjur jafnt yfir = 211-227-235-259-275-299 lykkjur (nú er pláss fyrir 26-28-29-32-34-37 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum). Ör-3: Aukið út 52-48-52-64-68-72 lykkjur jafnt yfir = 263-275-287-323-343-371 lykkjur (nú er pláss fyrir 65-68-71-80-85-92 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-4: Aukið út 48-56-68-72-76-80 lykkjur jafnt yfir = 311-331-355-395-419-451 lykkjur (nú er pláss fyrir 77-82-88-98-104-112 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Prjónið A.1 til loka, síðan er prjónað með litnum ljós grágrænn þar til stykkið mælist ca 26-28-29-31-33-35 cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð frá röngu skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-53-58-64-70 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 93-99-105-115-127-139 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-53-58-64-70 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki), Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 197-211-227-247-275-299 lykkjur. Haldið áfram með litnum ljós grágrænn og sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm. Nú eru eftir ca 6 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið JAFNFRAMT út 39-45-45-49-57-61 lykkjur jafnt yfir = 236-256-272-296-332-360 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm, prjónið síðan 1 umferð stroff með litnum brúnn. Fellið af með litnum brúnn, með garðaprjóni yfir garðaprjón, með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Setjið 63-66-72-82-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-72-80-90-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón með litnum ljós grágrænn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 9-10-13-17-18-19 sinnum = 51-52-54-56-56-58 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 32-31-30-29-27-25 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-8-10-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 38-37-36-35-33-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu meðfram framstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 152-156-160-164-168-172 lykkjur á hringprjón 3 með litnum brúnn (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2½ till 3 cm – stillið af að kantur að framan sé jafn breiður og 5 lykkjur sem felldar voru af í kanti í hálsmáli. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan, en eftir ca 1 til 1½ cm, fellið af fyrir 6-6-6-7-7-7 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að sitja ca 8 cm frá neðri kanti, efsta hnappagatið á að sitja beint fyrir neðan kant í hálsmáli. Fallegast er að fækka lykkjum í brugðnum einingum (séð frá réttu), með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og síðan að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. FRÁGANGUR: Saumið kanta að framan við kant í hálsmáli innan við 1 kantlykkju með sauminn inn að röngu á stykki. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli saman tvöfalt inn að röngu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Heike wrote:
Hallo, werden am Diagramm nur die Hinreihen dargestellt?Wenn ja,wie werden die Rückreihen gearbeitet?lg
01.02.2024 - 10:58DROPS Design answered:
Liebe Heike, alle Reihen sind im Diagram gezeichnet, so liest man das Diagram von unten nach oben und rechts nach links bei den Hin-Reihen und links nach rechts bei den Rückreihen. Viel Spaß beim stricken!
01.02.2024 - 15:45Karin Larsson wrote:
Har gjort denna modell , väldigt snyggt på framsidan men är alldeles för stor på baksidan med öket,\r\nsista två ökningar i öket skulle nog inte ha gjorts på baksidan eller i alla fall mycket mindre.\r\neller vi får ha bröst på ryggen också...haha...\r\nblev väldigt besviken..var mycket jobb och dyrt...och vet nu inte riktig vad jag ska göra åt det....
04.01.2023 - 16:27Mary Moore wrote:
The edge stitches - are these always worked in brown please? Or do you use the colour/one of the colours being used in the pattern on the yoke? (or the grey/green if you are working the body?) Thanks!
06.06.2022 - 01:51DROPS Design answered:
Dear Mary, you need to work the edge stitches with the same colour as the first/ last stitch in the chart. So it will change depending on the row you are working. Happy knitting!
06.06.2022 - 13:41Julie wrote:
Yoke: Leading up to A.1 chart, number of sts is odd (147 for size XXL). Stitches in pattern repeats are even (4, 6, and 8). How can that work? Does the repeating pattern start immediately after the edge (garter) stitch? (Even so, the number is still odd, with one st at each side.) Help, please!
31.05.2022 - 23:47DROPS Design answered:
Hi Julie, You have 1 edge stitch, then work A.1 until there are 2 stitches left on the row, work the first stitch in A.1 and 1 edge stitch. This gives you a symmetry to the pattern (working the 1st stitch in A.1 at the end of the row) and means A.1 fits the stitch count (144 /4 = 36). Happy knitting!
01.06.2022 - 06:50Daniela Conti wrote:
Oh ja - das würde mich extrem reizen, dieses wunderbare Stück zu stricken 😍
11.10.2021 - 11:52Mariella wrote:
Waiting for the charts
30.09.2021 - 08:37Lisa wrote:
Warte schon ganz ungeduldig auf die Anleitung❤🧡💛
15.09.2021 - 18:08Inessa Bickmeyer wrote:
Ya!! ich will das!
10.08.2021 - 00:24