Icicles Set |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónað eyrnaband og hálsskjól úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með köðlum, klukkuprjónslykkjum og útaukningu fyrir axlarsæti.
DROPS 225-16 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti í hálsskjóli): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 59 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim 55 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 4. og 5. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman við miðju að aftan. EYRNABAND: Fitjið upp 21 lykkjur á prjón 5 með DROPS Air. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 2 lykkjur, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við miðjulykkju = 23 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat), endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1 fram og til baka þar til eyrnabandið mælist ca 48 cm – eða að óskaðri lengd, endið eftir 2. eða 6. umferð í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur yfir miðju 9 lykkjurnar með því að prjóna 2 fyrstu af þessum 9 lykkjum snúnar slétt saman og 2 síðustu slétt saman = 21 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið þráðinn frá, en látið þráðinn vera nægilega langan til að sauma eyrnabandið saman með. FRÁGANGUR: Saumið eyrnabandið saman innan við uppfitjunarkantinn/affellingarkantinn. Klippið þráðinn og festið. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Fyrst er prjónaður kantur í hálsi í stroffprjóni. Síðan eru lykkjur auknar út fyrir axlarsæti í hvorri hlið. Síðan eru axlarlykkjur felldar af og hvort stykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig að loka máli. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 88-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (frá hægri öxl að aftan þegar hálsskjólið er mátað) þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 7-8 cm. Setjið 1 prjónamerki í 33.-35. lykkju í umferð (= miðjulykkjan að framan). Stykkið er nú síðar mælt frá þessu prjónamerki! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi prjónamerki eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og verða að hafa annan lit en prjónamerki mitt að framan til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð (= hægri öxl að aftan þegar hálsskjólið er mátað). Annað prjónamerki: Teljið 21-21 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 23-27 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 21-21 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 23-27 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 yfir fyrstu 20 lykkjurnar (= 5 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.2 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins á milli 1. og 2. prjónamerkis, prjónið 0-2 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 23 lykkjur), 0-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 20 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.2 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins á milli 3. og 4. prjónamerkis, prjónið 0-2 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 23 lykkjur) og endið með 0-2 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 18-20 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni) = 160-176 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-9 cm meðfram öxl og frá prjónamerki mitt að framan. Nú á að fella af allar axlalykkjur. Prjónið eins og áður þar til eftir eru 0-1 lykkja á undan 1. prjónamerki, fellið af 21-23 axlalykkjur með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING, prjónið eins og áður þar til eftir eru 0-1 lykkja á undan 3. prjónamerki, fellið af 21-23 axlalykkjur með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING og prjónið eins og áður út umferðina. Klippið þráðinn frá. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjóna hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 59-65 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með A.3 yfir miðju 23 lykkjur, sléttprjón í hvorri hlið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. hálsskjólið og prjónið að óskaðri lengd. Endið mynstur eftir 2. eða 6. umferð í A.3. Nú eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan, til að stroffi sem prjóna á dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 71-79 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Byrjið frá röngu og prjónið stroff þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Stykkið mælist ca 34-37 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: = 59-65 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Karin Boholm wrote:
Jag försöker sticka halsvärmaren i den större storleken och då ska fram- och bakstycke bestå av 27 maskor, men det finns inget diagram för 27 maskor, bara till den mindre storleken (23 maskor). Jag får helt enkelt inte beskrivningen av hela första varvet efter resårstickningen att gå ihop. Tacksam för klargörande. (Pannbandet blev jättesnyggt!)
03.11.2022 - 16:50DROPS Design answered:
Hej Karin, har du talt de 2 masker glatstrik med på hver side af mønsteret? sticka 0-2 maskor slätstickning, A.3 (= 23 maskor), 0-2 maskor slätstickning = 27 m :)
04.11.2022 - 10:30Synnøve Aga wrote:
Hals. Sadelskulderøkning:Hva menes med "strikk 1. masker A2 slik at mønsteret starter og slutter likt mellom 1. og andre merke" ? Det er 21 masker mellom 1. og andre merke, og 5 rapporter A2 blir jo 20 masker. Skal da den siste masken før merke nr 2 strikkes rett ? Mvh Synnøve Aga
15.02.2022 - 16:24DROPS Design answered:
Hei Synnøve, A.2 begynner med å strikke 1 rett maske i masken under denne masken og, for at mønsteret skal bli symmetrisk på forstykket, strikker du det samme før du begynner på ermet. God fornøyelse!
17.02.2022 - 06:53Henriette wrote:
Hej! Tack för den fina mönster. Förlåt men jag förstår inte hur gör man PANNBAND. Börja med 21 maskor skriver osv. Är det möjligt istället att sticka A1 direkt och hur många maskor behöver jag då att lägga upp på en rundsticka när jag ska börjar sticka A1? Tänkte starta med bara reso det är kort tid till julen måste gå fast arebetet.Tack
15.12.2021 - 11:54DROPS Design answered:
Hej Henriette. Du börjar med 21 maskor, stickar 2 varv rätstickning och stickar sedan ett varv med räta maskor där du ökar 2 maskor. Du har nu 23 maskor och stickar A.1 som består av 23 maskor. Vill du inte ha de 2 rätstickade varven först så kan du lägga upp 23 maskor direkt. Mvh DROPS Design
15.12.2021 - 12:24Henriette wrote:
Hej! Tack för den fina mönster. En fråga hur många maskor har på S/M när jag börjar sticka A1? Tack
15.12.2021 - 11:38DROPS Design answered:
Hej Henriette. Du har 23 maskor när du börjar sticka A.1 (pannbandet). Mvh DROPS Design
15.12.2021 - 12:25FINET wrote:
Bonjour, Est il possible d'avoir les explications pour aiguilles droites ? Merci +++🤗
11.11.2021 - 14:08DROPS Design answered:
Bonjour Mme Finet, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de réécrire chacun de nos modèles, mais cette leçon devrait pouvoir vous aider à faire les ajustements; votre magasin DROPS saura vous aider si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
11.11.2021 - 17:32