Tween Twinkle |
|||||||
|
|
||||||
Prjónað eyrnaband með kaðli og hálsskjól fyrir börn úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkin eru prjónuð í stroffprjóni og sléttprjóni. Stærð 2– 12 ára.
DROPS Children 40-33 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning A.1 til A.5 er notuð við frágang á eyrnabandinu. Mynsturteikning A.6 á einungis við eyrnabandið. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna eins og hólkur. Endarnir eru saumaðir saman þannig að þeir mynda kaðal mitt framan á eyrnabandinu. EYRNABAND: Fitjið upp 33-35-37-39 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið í hring þannig: Prjónið 11-12-13-14 lykkjur sléttprjón, prjónið mynsturteikningu A.6 (= 11 lykkjur) og prjónið 11-12-13-14 lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 45-47-48-49 cm, eða að óskaðri lengd – eyrnabandið á að sitja svolítið þétt að höfðinu. Fellið af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Stykkið er nú eins og hólkur með op í hvorum enda, leggðu hólkinn saman flatan – passið uppá að hann sé ekki snúinn og að mynstur A.6 sé fyrir miðju á hólknum (þetta á að vera réttan þegar stykkinu er snúið). Nú á að loka opinu í endunum með saum í hvorri hlið, saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur – sjá strikaða línu í mynsturteikningu A.1. Stykkið er nú eins og flatur rétthyrningur, brjótið rétthyrninginn á lengdina þannig að hann liggi tvöfaldur með mynstrið sem er prjónað frá réttu á eyrnabandinu sé inni í brotinu – sjá mynsturteikningu A.2. Nú eiga löngu hliðarnar á eyrnabandinu að leggast inn í hvora aðra í lögum án þess að snúa stykkinu – sjá mynsturteikningu A.3. Endarnir á eyrnabandinu liggja nú til skiptis innan í og utan á hvorum öðrum og endarnir liggja kant í kant – sjá mynsturteikningu A.4. Nú á að sauma í gegnum öll lögin þannig: Saumið meðfram strikuðu línunni í mynsturteikningu A.5 (þ.e.a.s. yfir endana á stykkinu), saumið með þéttum saum með 1 lykkju í hverja lykkju – það er mikilvægt að sauma í gegnum öll lögin þannig að saumurinn sýnist ekki þegar stykkinu er snúið við. Klippið þráðinn frá og festið. Snúið stykkinu þannig að saumurinn sé að innanverðu á eyrnabandinu. ------------------------------------------------------- HÁLSSKÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka neðan frá og upp. Stykkið byrjar neðst á framstykki. Fellt er af fyrir hálsmáli og hvor öxl er síðan prjónuð hvor fyrir sig yfir axlirnar. Síðan eru lykkjur auknar út við háls aftan í hnakka, áður en axlalykkjurnar eru settar saman og bakstykkið er prjónað áfram. Að lokum eru saumaðar upp lykkjur í kringum hálsinn og prjónað er í stroffprjóni. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 32-36-44-48 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur garðaprjón. Prjónið síðan með 3 kantlykkjum garðaprjón í hvorri hlið og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 4 cm og næsta umferð er frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, prjónið sléttprjón yfir næstu 14-18-26-30 lykkjur, prjónið eins og áður yfir síðustu 9 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út í hvorir hlið frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 10 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður út umferðina. Í næstu umferð er prjónað eins og áður, en uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið. Endurtakið útaukningu með ca 2½-2½-3-2½ cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 3-3-3-4 sinnum í hvorir hlið = 38-42-50-56 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 14-15-16-17 cm, nú á að taka lykkjur frá fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 16-17-20-22 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð fyrir vinstri öxl, fellið af næstu 6-8-10-12 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið út umferðina. Axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. HÆGRI ÖXL: = 16-17-20-22 lykkjur. Byrjið frá röngu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2 sinnum og fellið af 1 lykkju 1-2-2-2 sinnum = 11-11-14-16 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22-24 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt prjónamerki í stykkið til að mæla frá síðar (= mitt ofan á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist 1-1½-2½-2½ cm frá prjónamerki á öxl og næsta umferð er frá röngu, nú eru fitjaðar upp lykkjur við háls í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 1-2-2-2 sinnum og fitjið upp 2 lykkjur 2-2-2-2 sinnum = 16-17-20-22 lykkjur. Stykkið mælist ca 4-5-6-7 cm frá prjónamerki á öxl. Klippið þráðinn frá og setjið lykkjur á nýjan þráð, prjónið nú vinstri öxl. VINSTRI ÖXL: Setjið til baka fyrstu 16-17-20-22 lykkjur af þræði á prjóninn. Byrjið frá röngu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2 sinnum og fellið af 1 lykkju 1-2-2-2 sinnum = 11-11-14-16 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22-24 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt prjónamerki í stykkið til að mæla frá síðar (= mitt ofan á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist 1-1½-2½-2½ cm frá prjónamerki á öxl og næsta umferð er frá réttu, nú eru fitjaðar upp lykkjur við háls í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 1-2-2-2 sinnum og fitjið upp 2 lykkjur 2-2-2-2 sinnum = 16-17-20-22 lykkjur. Fitjið upp 6-8-10-12 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 22-25-27-34 lykkjur. Stykkið mælist ca 4-5-6-7 cm frá prjónamerki á öxl. Nú er vinstri og hægri öxl sett saman og bakstykkið er prjónað áfram héðan. Setjið til baka lykkjur af hægri öxl á prjóninn og prjónið yfir þessar lykkjur frá réttu = 38-42-50-56 lykkjur. BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið og 6 lykkjur stroffprjóni í hvorri hlið eins og áður. JANFRAMT þegar stykkið mælist 7-9-10-10½ cm frá prjónamerki á öxl er lykkjum fækkað innan við ystu 10 lykkjurnar í hvorri hlið frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir ystu 10 lykkjurnar, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 12 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir. Prjónið eins og áður yfir síðustu 10 lykkjurnar. Endurtakið úrtöku innan við 10 ystu lykkjurnar í hvorri hlið með ca 2½-2½-3-2½ cm millibili þar til fækkað hefur verið alls 3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið = 32-36-44-48 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 14-16-18-20 cm frá prjónamerki á öxl – stillið af að bakstykkið sé jafn langt og framstykkið (án stroffs). Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt9 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið síðan með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 4 cm og næsta umferð sé frá réttu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! KANTUR Í HÁLSI: Notið hringprjón 4 og 1 þráð DROPS Flora og 1 þráð DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Byrjið við prjónamerki á öxl og prjónið upp ca 72-80-84-88 lykkjur í kringum hálsinn. Prjónið 1 umferð brugðið og aukið út til 88-92-96-104 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist ca 16-18-22-22 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Heidi wrote:
Onko kaulurin pääntien reunuksen pituus oikeasti 4 cm? Kuvassa näyttää siltä että se on paljon enemmän (noin 20 senttiä ehkä=)
15.09.2022 - 08:55DROPS Design answered:
Hei, tämä malli neulotaan alhaalta ylös, eli alareunan reunuksen pituus on 4 cm. Pääntien reunuksen pituus on n- 16-22 cm (koosta riippuen).
20.09.2022 - 18:47Patrycja wrote:
Prawe ramię-czy zamykanie oczek na dekolt wykonuje się na pewno na początku rzędu na prawej stronie?
30.11.2021 - 22:13DROPS Design answered:
Witaj Patrycjo, zaczynasz prawe ramię na lewej stronie robótki, przerabiasz rząd na lewej stronie i obracasz robótkę. Teraz będziesz zamykać oczka na dekolt i powtarzać to na początku każdego rzędu na prawej stronie robótki. Pozdrawiamy!
01.12.2021 - 08:43Signe Britt Halvorsen wrote:
Får ikke fram diagrammet i denne oppskriften sånn at jeg kan skrive den ut.
06.10.2021 - 00:21DROPS Design answered:
Hei Signe Britt, Det er bare 1 diagram med mønster, helt i bunnen av oppskriften. God fornøyelse!
06.10.2021 - 07:02Signe Britt Halvorsen wrote:
Får ikke fram diagrammet til denne oppskriften.Dermed får jeg ikke skrevet det ut.Det kommer ikke ut med annet en den vanlige oppskriften som er skriftlig.
06.10.2021 - 00:20