Frosted Windows |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað með stuðlakrókum, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-20 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Endið umferð með 1 stuðli í fyrsta stuðul frá fyrri umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Endið umferð með 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð. Þegar heklað er í hring (á við um ermar og kant í hálsi): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í byrjun á umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR STUÐLAKRÓKSMYNSTUR: Þegar stuðlakróksmynstur er heklað er mikilvægt að stuðlakrókslykkjurnar séu ekki of stífar né of lausar. Ef stuðlakrókslykkjurnar eru of stífar þegar heklaðir eru stuðlakrókar-fjórbrugðnir stuðlar, er hægt að hekla stuðlakróka-fimmbrugðna stuðla í staðinn. Ef stuðlakrókslykkjurnar eru of lausar, er hægt að hekla stuðlakróka-þríbrugðna stuðla í staðinn. ÚRTAKA: Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum hvort fyrir sig. Heklað er stuðlakróksmynstur og kaðlar á framstykki – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR STUÐLAKRÓKSMYNSTUR. Ermar eru heklaðar í hring, en snúið er við í hverri umferð þannig að önnur hver umferð sé hekluð frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að áferðin á fram- og bakstykki og ermum verði alveg eins. Að lokum er heklaður tvöfaldur kantur í hálsmáli á peysunni. BAKSTYKKI: Heklið 75-81-87-93-102-111 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) – sjá LOFTLYKKJA, á heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af þeim 71-77-83-89-107 loftlykkjum sem eftir eru = 72-78-84-90-99-108 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR: Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.1 fram og til baka. Endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 10 cm – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu og að fækkað sé um 2-2-2-2-1-2 fastalykkjur í þessari umferð – sjá ÚRTAKA (= frá röngu) = 70-76-82-88-98-106 lykkjur. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðl í hverja lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hvern af fyrstu 2-3-5-6-8-10 stuðla, heklið stuðla eins og áður yfir næstu 66-70-72-76-82-86 lykkjur (nú eru eftir 2-3-5-6-8-10 lykkjur í umferð). Heklið síðan fram og til baka í mismunandi stærðum þannig: Í stærð S, M, L og XL er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan. Í stærð XXL og XXXL er heklað þannig: Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul, jafnframt eru heklaðir 2 stuðlar saman í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 78-82 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul yfir 66-70-72-76-78-82 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Heklið nú yfir fyrstu 20-22-23-23-24-26 lykkjur fyrir hægri öxl, heklið næstu 2 stuðla saman – sjá ÚRTAKA að ofan, snúið við og heklið til baka yfir 21-23-24-24-25-27 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 56-58-60-62-64-66 cm. Klippið þræðina frá og festið. Hoppið yfir miðju 22-22-22-26-26-26 lykkjur á bakstykki, byrjið í 23.-23.-23.-27.-27.-27. lykkju og heklið yfir síðustu 22-24-25-25-26-28 lykkjur fyrir vinstri öxl, með byrjun frá réttu og frá hálsi þannig: Heklið fyrstu 2 stuðla saman, heklið 1 stuðul í hverja af þeim 20-22-23-23-24-26 lykkjum sem eftir eru. Snúið og heklið 1 stuðul í hverja af 21-23-24-24-25-27 lykkjum. Klippið þræðina frá og festið. FRAMSTYKKI: Heklið 75-81-87-93-102-111 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, á heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af þeim 71-77-83-89-107 loftlykkjum sem eftir eru = 72-78-84-90-99-108 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR: Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.1 fram og til baka. Endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 10 cm – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu og að fækkað er um 2-2-2-2-1-2 fastalykkjur í þessari umferð – sjá ÚRTAKA (= frá röngu) = 70-76-82-88-98-106 lykkjur. Heklið nú mynstur þannig – 2 fyrstu umferðir í mynsturteikningu eru nú þegar heklaðar – byrjið í umferð með ör í mynsturteikningu: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 21-24-27-28-33-37 lykkjum, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, 0-0-0-1-1-1 stuðull í hverja af næstu 0-0-0-2-2-2 lykkjur, A.3 yfir næstu 24 lykkjur, 0-0-0-1-1-1 stuðull í hverja af næstu 0-0-0-2-2-2 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, 1 stuðull í hverja af síðustu 21-24-27-28-33-37 lykkjum. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið A.x á hæðina. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 2-3-5-6-8-10 stuðlum, heklið mynstur eins og áður yfir næstu 66-70-72-76-82-86 lykkjum (nú eru eftir 2-3-5-6-8-10 lykkjur í umferð). Heklið síðan fram og til baka í mismunandi stærðum þannig: Í stærð S, M, L og XL er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan. Í stærð XXL og XXXL er heklað þannig: Heklið fram og til baka með mynstri eins og áður, jafnframt eru heklaðir 2 stuðlar saman í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 78-82 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Heklið fram og til baka með mynstri eins og áður yfir 66-70-72-76-78-82 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú skiptist stykkið fyrir hægri og vinstri öxl, jafnframt er mynstur heklað eins og útskýrt er að neðan. MYNSTUR: Haldið áfram fram og til baka með eins margar lykkjur af mynstri eins og pláss er fyrir. Þegar úrtöku fyrir hálsmáli er lokið er hekluð í næstu umferð frá réttu þannig, frá umferð með ör í mynsturteikningu: Heklið A.4 yfir A.2 á hægri öxl og A.5 yfir A.2 á vinstri öxl, þannig að hekluð sé 1 stuðlakrókslykkja í stað 2 stuðlakrókslykkjur í hvorri hlið í hálsmáli. VINSTRI OG HÆGRI ÖXL: Heklið eins og áður yfir fyrstu 23-25-26-26-27-29 lykkjur, heklið 2 og 2 lykkjur saman yfir fyrstu 4 lykkjur (= 2 lykkjur færri), snúið og heklið 2 og 2 lykkjur saman yfir næstu 4 lykkjur (= 2 lykkjur færri), heklið út umferðina. Snúið og heklið yfir næstu 19-21-22-22-23-25 lykkjur, heklið 2 og 2 lykkjur saman yfir næstu 4 lykkjur (= 2 lykkjur færri) = 21-23-24-24-25-27 lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður – stillið af að endað sé eftir umferð frá réttu. Klippið þræðina frá og festið. Hoppið yfir næstu 12-12-12-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli, byrjið í 13.-13.-13.-17.-17.-17. lykkju frá réttu og heklið vinstri öxl þannig: Heklið 2 og 2 lykkjur saman yfir næstu 4 lykkjur (= 2 lykkjur færri), heklið út umferðina. Snúið og heklið fyrstu 21-23-24-24-25-27 lykkjur, heklið 2 og 2 lykkjur saman yfir næstu 4 lykkjur (= 2 lykkjur færri). Snúið og heklið 2 og 2 lykkjur saman yfir fyrstu 4 lykkjur (= 2 lykkjur færri), heklið út umferðina = 21-23-24-24-25-27 lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður – stillið af að endað sé eftir umferð frá réttu. Klippið þræðina frá og festið. ERMI: Heklið 43-46-46-49-49-52 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið síðan stykkið hringinn, en eftir hverja umferð er stykkinu snúið við þannig að önnur hver umferð sé hekluð frá réttu og frá röngu. 1. umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af 42-45-45-48-48-51 loftlykkjum = 42-45-45-48-48-51 stuðlar + 3 loftlykkjur. Snúið stykkinu og heklið 1. umferð í A.1 frá réttu (= 14-15-15-16-16-17 mynstureiningar A.1 + 3 loftlykkjur til að snúa við með). Haldið svona áfram með aðra hverja umferð frá réttu og röngu þar til stykkið mælist 12 cm. Heklið nú áfram alveg eins með stuðlum í hverri umferð. Þegar stykkið mælist 13 cm, byrjar útaukning undir ermi. Aukið út um 1 lykkju í fyrstu og síðustu lykkju í umferð með því að hekla 2 lykkjur í eina lykkju. Aukið svona út með ca 17-16½-8-10-5½-5 cm millibili alls 3-3-5-4-6-6 sinnum = 48-51-55-56-60-63 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Heklið síðan áfram þar til ermin mælist ca 47-46-45-44-41-39 cm. Aukið nú út um 1 lykkju í fyrstu og síðustu lykkju í umferð í báðum næstu 2 umferðum = 52-55-59-60-64-67 lykkjur + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Heklið nú fram og til baka frá byrjun á umferð þannig að það myndist lítil klauf mitt undir ermi. Þegar ermin mælist alls 50-50-50-50-50-49 cm, er ermin tilbúin. Klippið þræðina frá og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman axlasauma í eina og eina lykkju. Saumið ermar í við fram- og bakstykki eins og teikning sýnir. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður þar til eftir eru ca 17 cm fyrir klauf í hlið. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt ofan á annarri öxlinni og heklið með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) og með heklunál 5 þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í axlasauminn, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls 24-24-24-26-26-26 sinnum hringinn í umferð, en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga = 72-72-72-78-78-78 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram hringinn með A.1 þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 12 cm. Í næstu umferð er aukin út 1 lykkja á milli hverja af stuðlakrókslykkjum með því að hekla 2 lykkjur í eina lykkju = 96-96-96-104-104-104 lykkjur. Heklið áfram þar til kantur í hálsmáli mælist 16 cm. Brjótið niður kantinn að innanverðu á stykki. Saumið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Sylvia Sollien wrote:
På begynnelsen av hver rad med staver hekles det 3 luftmasker. Disse luftmaskene erstatter ikke første stav, men hekles i tillegg til de resterende maskene på raden. Hva betyr det? Gjør man det på den måten vil man øke vidden i ryggstykket.
30.03.2024 - 10:46DROPS Design answered:
Hei Sylvia, Disse luftmasken er til å snu med, så det blir ikke flere masker på bakstykket. God fornøyelse!
04.04.2024 - 06:32SUSANA ALEJANDRA PAREDEZ wrote:
Hola, me encanta este diseño, pero no me descarga las imagenes de los diagramas.
22.05.2022 - 16:15DROPS Design answered:
Hola Susana, el diagrama debería estar disponible ahora.
26.05.2022 - 22:41Cora wrote:
Wat een mooi patroon, is echt wat voor mij. Ik haat breien maar haken is mijn hobby. Ik ga er snel aanbeginnen.
28.10.2021 - 08:14Simone Spruyt wrote:
Ik doe heel graag breien, ´iever dan haken
11.09.2021 - 10:09ESPERANZA wrote:
Me gusta el crochet
31.08.2021 - 20:45