Atlanterhavsveien Jacket |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, norrænu mynstri á berustykki og kanti í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-9 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í lok hverrar brugðinnar einingar. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 18 lykkjur) og deilið þeim 126 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 37) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist 13-13-13-15-15-15 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 11-11½-9½-10-10½-11 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 94-97-100-103-106-112 lykkjur (meðtaldar 9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4 með litnum grár í DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 9 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 9 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 13-13-13-15-15-15 cm. Síðar er kanturinn brotinn saman tvöfaldur og við frágang þá verður kanturinn 6-6-6-7-7-7 cm. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram með stroff eins og áður. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 1 cm frá prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í hverja og eina af 25-26-27-28-29-31 brugðnum einingunum – sjá ÚTAUKNING-1 = 119-123-127-131-135-143 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 1 lykkja snúin slétt, 3 lykkjur brugðið (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 3-4-5-6-7-8 cm frá prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðnu einungunum – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 144-149-154-159-164-174 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat). Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-6-7-9-10-11 cm frá prjónamerki, aukið út um 37-38-45-46-53-61 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 181-187-199-205-217-235 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið). Í næstu umferð (rétta) byrjar mynstrið, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (= 27-28-30-31-33-36 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Sjá LEIÐBEININGAR og munið eftir ÚTAUKNING-2! Ör-1: Aukið út um 42-48-48-60-60-66 lykkjur jafnt yfir = 223-235-247-265-277-301 lykkjur (nú er pláss fyrir 34-36-38-41-43-47 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út um 24-30-36-36-42-48 lykkjur jafnt yfir = 247-265-283-301-319-349 lykkjur (nú er pláss fyrir 38-41-44-47-50-55 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-3: Aukið út um 10-8-14-20-22-20 lykkjur jafnt yfir = 257-273-297-321-341-369 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukninga með litnum grár og 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 43-46-49-52-57-62 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-50-56-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 75-81-87-93-103-113 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-50-56-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 43-46-49-52-57-62 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjóna hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 173-189-201-217-241-261 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan til að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 29-34-37-39-45-49 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 202-223-238-256-286-310 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 9 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-50-56-62-62-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-8-10-12-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum grár. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-5-3½-2½-2-2 cm millibili alls 6-7-9-12-12-13 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 35-34-33-31-30-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-10-11-12-10-11 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 51-54-57-60-60-63 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-44-43-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður efstu ca 6-6-6-7-7-7 cm af stroffi í hálsi að innanverðu á stykki (niður að prjónamerki sem var sett í stykkið). Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Judy Stickle wrote:
Is the first buttonhole measured from the cast-on edge? Thank you!
17.03.2024 - 13:19DROPS Design answered:
Dear Judy, you should cast off for the first buttonhole, when neck edge measures 13-13-13-15-15-15 cm (from the vast on edge.) Happy Knitting!
17.03.2024 - 14:51Carina wrote:
Menos la tercera flecha que sí está puesta en el lado del revés, entonces cambio las flechas a un fila antes o una después?
13.11.2021 - 23:46DROPS Design answered:
Hola Carina, en el caso de las flechas solo se tiene que aplicar el Tip-2 para los aumentos, por lo que no importa el lado por el que se trabajen los aumentos. El Tip-1, que es el que indica por qué lado se trabajan los aumentos, solo se aplica cuando se indique en las instrucciones escritas (lo cuál no es el caso al trabajar el patrón A.1).
14.11.2021 - 18:38Carina wrote:
Hola Dices que todos los aumentos se hacen por el lado derecho pero las flechas de aumentos del patrón están puestas en el lado del revés, qué estoy viendo mal? Gracias
13.11.2021 - 23:02DROPS Design answered:
Hola Carina, puedes ver la respuesta arriba.
14.11.2021 - 18:39Karen Nanos wrote:
How do you make a “knit 1 twisted” stitch in the beginning of the Atlanterhavsveien jacket pattern?
26.10.2021 - 13:15Lois A Chisholm wrote:
In the section about the Body, it says 24 cm=24 inches. How long is the body supposed to be from the armpit to the beginning of the bottom ribbing?
19.10.2021 - 00:49DROPS Design answered:
Dear Lois, please refer to the shcematic drawing at the bottom of the pattern description and diagrams, for checking measurements. Hapy Stitching!
19.10.2021 - 01:48Eli Flore wrote:
Til info - denne flotte veien i nordvest heter Atlanterhavsvegen, ikke veien.....
02.10.2021 - 21:27Sjan Baardemans wrote:
Heel mooi
10.08.2021 - 11:27Julie wrote:
Wintry day
05.08.2021 - 09:00Mimi M Routh wrote:
Just lovely! I bought a navy blue cardi in Norway with white "clover" in 1962 when I was 20. I paid $22! Still have it. For this one, maybe grey or that bright pink -- "while we're young". I do hope it uses steeks!
03.08.2021 - 23:16