Flower Harmony Vest |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað með köntum í stroffprjóni og með útsaumuðum blómum og frönskum hnútum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-43 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 111 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 8,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 7. og 8. hverja lykkju og 7. og 9. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku við handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur slétt, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ÚRTAKA-3 (á við um úrtöku fyrir hálsmáli): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem var prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið 3 lykkjur slétt, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Síðan er stykkið sett saman. Að lokum eru kantur í handvegi og í hásmáli prjónað í hring á hringprjóna. Þegar allt vestið er tilbúið eru saumuð út blóm og franskir hnútar á framstykkið. BAKSTYKKI: Fitjið upp 111-120-129-141-153-168 lykkjur á hringprjóna 3,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið stroff fram og til baka þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-14-15-17-17-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 98-106-114-124-136-148 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 6-6-7-7-8-8 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 86-94-100-110-120-132 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, jafnframt í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 1-1-2-5-8-12 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 6-8-8-8-8-8 sinnum = 72-76-80-84-88-92 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-91 cm. Fellið nú af miðju 32-32-34-34-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 19-21-22-24-25-27 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 111-120-129-141-153-168 lykkjur á hringprjóna 3,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið stroff fram og til baka þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-14-15-17-17-20 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 98-106-114-124-136-148 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar slétt). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 6-6-7-7-8-8 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 86-94-100-110-120-132 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, jafnframt í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 1-1-2-5-8-12 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 6-8-8-8-8-8 sinnum = 72-76-80-84-88-92 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm. Setjið nú miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 2 lykkjur við hálsmál – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum í öllum stærðum = 19-21-22-24-25-27 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana með lykkjuspori. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn með hringprjón 3,5 og DROPS Soft Tweed og prjónið upp frá réttu ca 105 til 120 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 kantlykkju garðaprjón í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið A.1 hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTAR Í HANDVEGI: Byrjið við hliðarsaum undir ermi með hringprjón 3,5 og DROPS Soft Tweed og prjónið upp frá réttu ca 144 til 168 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón í kringum handveg. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið A.1 hringinn í 3½ til 4 cm. Prjónið 1 umferð í mynstri eins og áður, en í hverja og eina af neðstu 11-11-13-13-15-15 endurtekningum með A.1 á handveg (þ.e.a.s. fyrstu 5-5-6-6-7-7 endurtekningar í byrjun á umferð og síðustu 6-6-7-7-8-8 endurtekningar í lok umferðar), fækkið allar 2 lykkjur brugðnar til 1 lykkja brugðin með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. Þetta er gert til að kantur í handvegi leggist fallega undir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. ÚTSAUMUR: Nú eru saumuð út blóm og franskir hnútar efst á framstykki. BLÓM - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Blómið mælist ca 4 til 4,5 cm að þvermáli. Byrjað er með frönskum hnút í miðju á blómi. Síðan er saumað út með keðjusaumi í kringum allan franska hnútinn. BLÓM: Byrjað er að sauma út franskan hnút – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – franski hnúturinn er saumaður út með einum þræði. Klippið þráðinn frá og festið. Þetta er miðjan á blóminu. Síðan er saumaður úr einfaldur keðjusaumur í kringum miðju á blómi – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu – keðjusaumurinn er saumaður út með tveimur þráðum. Það eru saumuð út ca 9 til 12 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1,5 – 2 cm langt. Klippið þræðina frá og festið. Staðsetjið blómin þannig – málin sýna miðju á blómum: Blóm-1 er saumað efst á hægri öxl ca 4 cm frá kanti í hálsmáli – notið litinn ferskja í franska hnútinn og litinn hvítur í blöðin. Blóm-2 er saumað út ca 9,5 cm undir blómi-1 og ca 7 cm frá kanti í hálsmáli – notið litinn hvítur í franska hnútinn og litinn dauf bleikur í blöðin. Blóm-3 er saumað út ca 6,5 cm lengra til hægri en blóm-2 og ca 7 cm frá kanti í hálsmáli – notið litinn dauf bleikur í franska hnútinn og litinn hvítur í blöðin. Blóm-4 er saumað út ca 9,5 cm til hægri á undan blómi-3 og ca 4 cm frá kanti í hálsmáli – notið litinn dauf bleikur í franska hnútinn og litinn ferskja í blöðin. Blóm-5 er saumað út ca 5 cm til hægri á undan blómi-4 og ca 5 cm frá kanti í hálsmáli – notið litinn hvítur í franska hnútinn og litinn dauf bleikur í blöðin. FRANSKIR HNÚTAR: Saumið út hnúta með frönskum hnútum á milli blóma – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – frönsku hnútarnir eru saumaðir út með einum þræði í litnum dauf bleikur. Staðsetjið nokkra franska hnúta á milli blóm-2 og blóm-1 og ca 2 til 5 cm frá kanti í hálsmáli. Staðsetjið nokkra franska hnúta til viðbótar á milli blóm-4 og blóm-5 ca 7 til 9 cm frá kanti í hálsmáli. Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Helga Eitel wrote:
Ich wollte de Pullunder in Größe XL stricken und stellte nach 20 cm fest dass das Rückenteil viel zu breit wird trotz Maschenprobe. Ich ribbelte alles auf und strickte die Größe L. Auch hier würde das Gestrickte viel zu breit. Bevor ich nun die Größe M stricke interessiert mich woran das liegen könnte. Anstatt Größe XL die Größe M zu stricken ist einfach nur komisch. Allerdings zieht sich die Wolle wirklich sehr. Haben Sie eine Erklärung dafür?
03.03.2023 - 16:52DROPS Design answered:
Liebe Frau Eitel, stimmt Ihre Maschenprobe? Die ist 20 Maschen = 10 cm; so haben Sie nach dem Bündchen 106 M in M (minus 2 Randmaschen) = 52 cm breit ; 114 M in L = 56 cm und 124 M in XL = 61 cm - genauso wie in der Maßskizze. Kann das Ihnen helfen?
06.03.2023 - 08:54Paulina wrote:
Bonjour merci pour le patron il est est super! J'ai juste modifié le bas de l'emmanchure en tricotant ensemble toutes les 2ème et 3ème m en début des tours et les 2 dernières en fin de chaques tours (en respectant le motif) afin que la manche ne forme pas un "pique" en dessous du bras. Encore merci pour ce patron
09.03.2022 - 22:23Barbro wrote:
Sticka en väst men ej på rundsticka, vilket nummer på stickorna bör jag ha? g Garnet är Soft Twed det gäller. MVH Barbro.
04.03.2022 - 16:31Caroline Elger wrote:
Hej, jag får inte ihop måtten. Utgå från tex storlek XXXL. Man ska lägga upp 168m för bak resp framstycke. Dra bort 2m för sidsömmar och det blir kvar 166m. Stickfastheten ska vara 20m/10cm. Bredden blir då 83cm (=10/20*166), men enligt er måttskiss är bredden 73cm. En skillnad på 10cm. Hur ska det vara?
06.12.2021 - 13:39DROPS Design answered:
Hej Caroline. Längst ner är det resår som drar ihop sig. Efter resåren så minskar du 20 m och har då 148 m. Måttet stämmer alltså med stickfastheten i slätstickning. Mvh DROPS Design
07.12.2021 - 14:33Charlotte Bohn Engelstoft wrote:
Hejsa, strikker denne vest. På mit udprint af opskriften er modeller i en vest med V-hals og blomster forneden, og det er det jeg troede jeg skulle strikke :-) Men kan nu se at opskriften er med rund hals til trods for billedet. Så jeg vil høre om i har opskriften med V-hals. har stikket bagstykke og forstykket, men vil så trevle op til V-halsen :-) På forhånd tak.
07.10.2021 - 15:49DROPS Design answered:
Hej Charlotte, jo du er vist kommet ind på en anden opskrift :) Her finder du den med V-hals: DROPS 222-42
08.10.2021 - 07:46Sahar Taha wrote:
L follow your collections and l like them very much so when will your new collection for autumn and winter will apppear thanks
04.07.2021 - 12:15DROPS Design answered:
Dear Sarah, we will strat to make the new patterns available in August. Happy Sitching!
05.07.2021 - 02:18Sahar Taha wrote:
L follow your collections and l like them very much so when will your new collection for autumn and winter will apppear thanks
04.07.2021 - 12:13DROPS Design answered:
Dear Sarah, we will strat to make the new patterns available in August. Happy Sitching!
05.07.2021 - 02:17Nathania Christabel wrote:
Hello there! Will you please explain the meaning of "knit twisted from right side, purl twisted from wrong side" ?
19.06.2021 - 04:21DROPS Design answered:
Dear Nathania, the charts showing all stitches as they look from the right side, so certain stitches (like stockinett) are knitted from the right side, and purled from the wrong side. Knitting or purling a stitch means that it is knitted into the "back leg" of the the stitch so it is twisting as you let it off from the needle. Happy Stitching!
19.06.2021 - 08:57