Island Breeze |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-39 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 209 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 20 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 25) = 7,5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptist 6. og 7. hverja lykkju slétt saman og 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna upp að ermakúpu. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 209-225-245-261-285-309 lykkjur á hringprjón 4,5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 10 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 11 lykkjur eru í umferð, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 yfir síðustu 10 lykkjur. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 10 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 189-205-225-241-265-289 lykkjur og fækkið um 25-29-33-33-37-41 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, prjónið A.2 yfir síðustu 10 lykkjur = 184-196-212-228-248-268 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 10 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, fækkið um 7-7-11-9-5-7 lykkjur jafnt yfir innan við 10 kantlykkjur að framan í hvorir hlið = 177-189-201-219-243-261 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1, prjónið A.3 þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.2. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.3 hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-46-47-48-49-50 cm. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og kantlykkjum að framan eins og áður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 5-5-5-7-7-5 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-212-236-256 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið fyrstu 46-49-52-56-62-67 lykkjurnar (= framstykki), fellið af næstu 4 lykkjur (= handvegur), prjónið næstu 72-78-84-92-104-114 lykkjur, fellið af næstu 4 lykkjur (= handvegur), prjónið þær 46-49-52-56-62-67 lykkjur sem eftir eru í umferð. Klippið þráðinn frá. Setjið lykkjur frá framstykki á sitt hvorn þráðinn og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: = 72-78-84-92-104-114 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – í hvorri hlið við handveg – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 0-0-0-3-3-3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum og 2-2-2-2-2-2 lykkjur 1-2-3-3-4-6 sinnum = 68-70-72-74-76-78 lykkjur fyrir bakstykki. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fellið af miðju 12-12-14-14-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 27-28-28-29-29-30 lykkjur fyrir öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 46-49-52-56-62-67 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, A.1 yfir 10 kantlykkjur að framan og 1 kantlykkju garðaprjón við handveg, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg alveg eins og á bakstykki = 44-45-46-47-48-49 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 52-52-54-54-54-54 cm, prjónið A.4 yfir ystu 11 lykkjur fyrir kant að framan. Lykkjufjöldinn í umferð er stöðugur, en prjónaðar eru fleiri lykkjur í mynstri A.4 og færri lykkjur í sléttprjóni. Þegar umferð með ör í A.4 hefur verið prjónuð til loka (sjá ör fyrir þína stærð) eru 15-15-16-16-18-18 lykkjur fyrir mynstur fyrir kant að framan. Endurtakið síðan síðustu 4 umferðir sem voru prjónaðar að loka máli. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og fellið af fyrstu 27-28-28-29-29-30 lykkjur fyrir öxl, prjónið síðan kraga fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar 17-17-18-18-19-19 lykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-8-8-8-9-9 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur. Endurtakið umferð 1-4 þar til kraginn mælist 5-5-6-6-7-7 cm þar sem stykkið er styst (= í þeirri hlið sem sauma á við hálsmál aftan í hnakka). Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 46-49-52-56-62-67 lykkjur. Prjónið áfram eins og hægra framstykki nema spegilmynd. Fellið af fyrir handveg í byrjun á umferð frá réttu eins og á hægra framstykki = 44-45-46-47-48-49 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 52-52-54-54-54-54 cm, prjónið A.5 yfir ystu 11 lykkjur fyrir kant að framan alveg eins og A.4 var prjónað á hægra framstykki. Þegar umferð með ör í A.5 hefur verið prjónuð til loka (sjá ör fyrir þína stærð) eru 15-15-16-16-18-18 lykkjur fyrir mynstur fyrir kant að framan. Endurtakið síðan síðustu 4 umferðir sem voru prjónaðar til loka máls. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 27-28-28-29-29-30 lykkjur fyrir öxl, prjónið síðan kraga fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar 17-17-18-18-19-19 lykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-8-8-8-9-9 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur. Endurtakið umferð 1-4 þar til kraginn mælist 5-5-6-6-7-7 cm þar sem stykkið er styst (= í þeirri hlið sem sauma á við hálsmál aftan í hnakka). Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið affellingarkantinn saman við 2 stykki fyrir kraga, passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka. ERMI: Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 9-9-7-7-7-7 lykkjur jafnt yfir = 35-35-41-41-45-45 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 2-2-2-2-3-3 sinnum = 39-39-45-45-51-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10 cm er prjónað mynstur þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.3 (= 6 lykkjur) alls 6-6-7-7-8-8 sinnum í umferð, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Aukið svona út í 9.-8.-8.-7.-6.-5. hverri umferð alls 4 sinnum á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 45-45-44-44-43-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af miðju 6 lykkjur mitt undir ermi og ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 6-8-9-9-9-10 sinnum og 3 lykkjur 2-1-1-1-2-2 sinnum = 13-13-15-17-17-17 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 53-54-54-54-54-54 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í við handveg. Saumið innan við 1 kantlykkju garðaprjón í handveg og innan við affellingarkant á ermi. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið tölu í vinstri kant að framan – ca þar sem gatamynstur A.3 byrjar á fram- og bakstykki. Tölum er hneppt í gegnum eitt af götum í hægri kanti að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Marloes wrote:
Hoe zet ik een patroon met garen C om naar garen B (patroon 220-30)?
11.04.2023 - 11:50DROPS Design answered:
Dag Marloes,
Je zou een dikkere naald kunnen gebruiken zodat je op dezelfde stekenverhouding uit komt, maar dat is denk ik niet wat je bedoelt. Om het om te zetten deel je het aantal (op te zetten) steken door de stekenverhouding (het aantal steken op 10 cm) van garen C en doe je dat getal keer het aantal steken op 10 cm van garen B. Dit is vrij kort door de bocht, want je moet natuurlijk ook rekening houden met eventuele patronen in het werk.
11.04.2023 - 20:45Catherine wrote:
Bonjour merci pour la réponse. Pour la manche, est-ce que les mailles ajoutées je les tricote au fur et à mesure avec le patron ou je les tricote en jersey et j'attends d'en avoir assez (6) pour faire le patron? Est-ce que je dois en avoir 6 de chaque côté de la maille du centre avant de faire la patron ? Merci
29.09.2021 - 15:20DROPS Design answered:
Bonjour Catherine, dans ce modèle, les augmentations sous les manches se tricotent en jersey. Mais si vous voulez les tricoter en A.3, il vous faudrait alors en avoir au moins 6 de chaque côté du milieu sous la manche pour pouvoir les tricoter en point ajouré. Bon tricot!
30.09.2021 - 09:29Catherine wrote:
Bonjour, pour l'encolure au 2ieme rang je tricote les 8 premières mailles à l'endroit et les 9 suivantes je les tricote comment? Merci
24.09.2021 - 23:08DROPS Design answered:
Bonjour Catherine, vous tricotez le col en rangs raccourcis, autrement dit, vous ne tricotez que les 8 premières mailles au 2ème rang, tournez et tricotez ces 8 mailles, puis tricotez 2 rangs sur toutes les mailles et répétez les rangs raccourcis, ainsi le côté extérieur du col sera plus long que celui intérieur (qui sera cousu le long de l'encolure dos) pour un joli retombé. Bon tricot!
27.09.2021 - 07:51Jolene wrote:
Hello, i am busy with the sleeve. My piece measures 10cm and starting the A3 pattern. How do i increase every 7th row while working the pattern, as this will throw out the number of stitches while working 12 rows of A3 pattern 4 times. Or do i work this and then increase every 7th row after i have worked A3 pattern 4 times vertically. Your assistance is appreciated. Thank you
13.09.2021 - 15:29DROPS Design answered:
Dear Jolene, the increased stitches mid under sleeve are first worked in stocking stitch, and when you have enough stitches for a whole repeat of A.3 at the beg + at the end of the sleeve, work these stitches in A.3 (= 2 new repeats in the round). Happy knitting!
14.09.2021 - 07:48Sandy wrote:
Mich würde auch die Maßskizze interessieren. Wann wird diese hinzugefügt?
07.05.2021 - 13:44DROPS Design answered:
Liebe Sandy, danke für den Hinweis, Maßskizze ist jetzt auch dabei. Viel Spaß beim stricken!
07.05.2021 - 14:11Isabelle Pawletko wrote:
Liebes Drops-Team, gibt es hierzu eine Maßskizze? Vielen Dank und Grüße Isabelle Pawletko
07.05.2021 - 11:14DROPS Design answered:
Liebe Isabelle, Sie finden die Maßskizze ganz am Ende der Anleitung, wenn Sie ganz nach unten scrollen. Viel Spaß beim Stricken!
18.05.2021 - 11:55Monica wrote:
Manca il disegno del modello con le misure in cui si sviluppano le varie taglie
07.05.2021 - 11:11DROPS Design answered:
Buonasera Monica, il disegno ora è stato aggiunto. Grazie per la segnalazione! Buon lavoro!
09.05.2021 - 17:09Gabriele wrote:
Ich warte nun schon seit Monaten auf die Anleitungen für die älteren Mädels. Schade!
05.05.2021 - 10:46