Bee Made |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Heklað poncho úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-23 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur. Loftlykkjurnar koma ekki í stað fyrsta stuðuls í umferð, heldur eru heklaðar sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Örin sýnir fyrstu umferð sem á að hekla í mynsturteikningu. ÚTAUKNING. Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er lykkjur auknar út mitt að framan, mitt að aftan og á hvorri öxl. Síðan eru lykkjur einungis auknar út mitt að aftan og mitt að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 137-137-153 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA með heklunál 4 með Cotton Merino og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í umferð. Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hverja af 136-136-152 loftlykkjum. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau merkja byrjun á umferð. Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.1a yfir næstu 32-32-36 lykkjur (= 8-8-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), A.1b yfir næstu 2 lykkjur (= mitt að aftan), A.1a yfir næstu 32-32-36 lykkjur (= 8-8-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), A.1b yfir næstu 2 lykkjur (= hægri öxl), A.1a yfir næstu 32-32-36 lykkjur (= 8-8-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), A.1b yfir næstu 2 lykkjur (= mitt að framan), A.1a yfir næstu 32-32-36 lykkjur (= 8-8-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), A.1b yfir næstu 2 lykkjur (= vinstri öxl), ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a og A.1b hefur verið heklað til loka, heklið með A.2a yfir A.1a og A.2b yfir A.1b. Þegar 5. umferð í mynsturteikningu hefur verið hekluð til loka, er útaukning á öxlum lokið. Í næstu umferð (= 6. umferð í mynsturteikningu) heklið mynstur eins og áður, en yfir aðra og fjórðu útaukningu (þ.e.a.s. á öxlum) heklið 3 stuðla um loftlykkjubogann mitt á öxl = 121-121-129 stuðlar í hvorri hlið á milli útaukninga mitt að framan og mitt að aftan á poncho. Haldið áfram þar til A.2a og A.2b hefur verið heklað til loka (= 33-33-35 loftlykkjubogar á milli loftlykkjuboga mitt að framan og mitt að aftan). Heklið nú þannig: Heklið A.3a þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan útaukningu mitt að aftan, heklið A.3b yfir næstu 3 loftlykkjuboga, heklið A.3a þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan útaukningu mitt að framan, heklið A.3b yfir næstu 3 loftlykkjuboga, heklið A.3a út umferðina. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka eru 152-152-160 stuðlar hvoru megin við útaukningu mitt að framan og mitt að aftan. Nú er 3. og 4. umferð í mynsturteikningu endurteknar 1 sinni til viðbótar á hæðina, jafnframt í 4. umferð eru auknir út 6 stuðlar í umferð – passið uppá að auknir séu út 3 stuðlar hvoru megin við útaukningu mitt að framan og mitt að aftan – sjá ÚTAUKNING = 163-163-171 stuðull hvoru megin við útaukningu mitt að framan og mitt að aftan. Heklið nú 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 3 lykkjum í umferð. Þetta er gert til að mynstrið gangi jafnt upp í umferð. Heklið frá 7. umferð (þ.e.a.s. umferð sem er merkt með 7) í mynsturteikningu þannig: Heklið A.2a þar til 14 stuðlar eru eftir á undan útaukningu mitt að aftan, A.2b (= útaukning mitt að aftan), A.2a þar til 14 stuðlar eru eftir á undan útaukningu mitt að framan, A.2b (= útaukning mitt að framan), A.2 umferðina út. Haldið áfram hringinn svona. Þegar 3 umferð með loftlykkjubogum hefur verið hekluð til loka, endurtakið síðustu umferð í mynsturteikningu þar til heklaðar hafa verið alls 6 umferðir með loftlykkjubogum = 48-48-49 loftlykkjubogum á milli útaukninga mitt að framan og mitt að aftan. Heklið nú þannig: Heklið A.4a þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan útaukningu mitt að aftan, A.4b yfir næstu 3 loftlykkjuboga (= útaukning mitt að aftan), A.4a þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan útaukningu mitt að framan, A.4b yfir næstu 3 loftlykkjuboga (= útaukning mitt að framan), A.4a út umferðina. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, eru 221-221-229 stuðlar hvoru megin við útaukningu mitt að framan og mitt að aftan. Stykkið mælist ca 40 cm meðfram útaukningu mitt að aftan í öllum stærðum. Heklið nú 1 keðjulykkju í hvora af fyrstu 2 lykkjum í umferð. Þetta er gert til að mynstrið gangi jafnt upp í umferð. Heklið nú þannig: Heklið A.2a þar til 3 stuðlar eru eftir á undan útaukningu mitt að aftan, A.2b (= útaukning mitt að aftan), A.2a þar til 3 stuðlar eru eftir á undan útaukningu mitt að framan, A.2b (= útaukning mitt að framan), A.2a út umferðina. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, eru 64-64-66 loftlykkjubogar á milli útaukninga mitt að framan og mitt að aftan. Heklið nú áfram þannig: Heklið A.3a þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan útaukningu mitt að aftan, A.3b (= útaukning mitt að aftan), A.3a þar til 1 loftlykkjubogi er eftir á undan útaukningu mitt að framan, A.3b (= útaukning mitt að framan), A.3a út umferðina. Endið mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S/M og L/XL: Þegar umferð 3 í mynsturteikningu hefur verið hekluð til loka, er ponchoið tilbúið. Klippið þráðinn frá og festið. Stærð XXL/XXXL: Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina, heklið umferð 3 í mynsturteikningu 1 sinni til viðbótar. Endið umferð með 1 keðjulykkju. Klippið þráðinn og festið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju í kringum kant í hálsmáli – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Klippið þráðinn frá og festið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
Sandra wrote:
Guten Tag, trotz der Erklärung für Monika komme ich an dieser Stelle auch nicht weiter. Wie kommen sie auf 29 Maschen A2b? Ich bin seit gestern am zählen, kann es aber nicht nachvollziehen. Was genau häkelt man über die drei Stäbchen? Vielen Dank im Voraus. Mit freundlichen Grüßen Sandra
06.01.2024 - 10:00DROPS Design answered:
Liebe Sandra, es war nur ein Typo, es sind 28 Maschen in jedem A.2a bei den Schultern: 13+3+12 Stäbchen. Viel Spaß beim häkeln!
08.01.2024 - 10:02Robert wrote:
Bonjour, si les 3 mailles en l’air du début ne comptent pas pour une bride, on se trouve à augmenter à chaque rang? Sont-elles illustrées sur le diagramme?
24.06.2023 - 21:24DROPS Design answered:
Bonjour Robert, au début de chaque tour, on crochète 3 mailles en l'air pour commencer, mais ces 3 mailles en l'air ne remplacent pas la 1ère maille, ce n'est pas une augmentation, c'est juste le début des tours. Les augmentations sont comprises dans les diagrammes concernées + quelques autres indiquées dans les explications. Bon tricot!
26.06.2023 - 08:40Monika wrote:
Hallo liebes Team, bin am verzweifeln. Komme bei dem Modell Drops 220—23 nicht weiter. Bei Reihe 6 heißt es 3 Stäbchen in den Luftmaschenraum Schultern . Wie geht es dann in Reihe 7 weiter bei den Schultern und den 3 Stäbchen , dass ich auf die 121 Maschen komme ? Bin kein blutiger Anfänger aber nach 5 x neu anfangen etwas gefrustet. Lieben Dank Monika
24.02.2023 - 22:49DROPS Design answered:
Liebe Monika, bei der 6. Reihe häkeln Sie 3 Stäbchen um die Luftmaschenbogen in der Mitte von A.2a und bei der 7. Reihe häkeln Sie jetzt A.2a zwischen beide A.2b mitte Vorne und am Rücken. Es sind: 32 Maschen A.2a + 29 M A.2b+32 M A.2a + (13+3+12) M A.2b (1. Schulter) + 32 M A.2a+ 29 M A.2b + 32 M A.2a + (13+3+12) M A.2b (2. Schulter) =32+29+32+28+32+29+32+28=242 = 121 Stäbchen zwischen Mitte Vorne und Rücken. Viel Spaß beim häkeln!
27.02.2023 - 09:26