Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja | |
= brugðin lykkja | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga að myndast göt) | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga ekki að myndast göt) | |
= 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri) | |
= í lykkjunni undir næstu lykkju er prjónuð 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri) | |
= prjónið 3 lykkjur slétt | |
= lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri) | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri) | |
= útaukningsumferð |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Now and Forever |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með rúllukanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, gatamynstri á berustykki og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-34 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 44) = 2,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca hver og önnur hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-110-114-118-124 lykkjur á hringprjóna 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 8 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Prjónið síðan 2 umferðir sléttprjón og aukið jafnframt út 44-48-50-54-58-60 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 144-152-160-168-176-184 lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í síðustu umferð). Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að framan). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 hringinn (= 18-19-20-21-22-23 mynstureiningar með 8 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 288-304-320-336-352-368 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 18-19-20-21-22-23 mynstureiningar með 16 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1-1-1-2-2-2 sinnum á hæðina, prjónið A.3 hringinn (= 18-19-20-21-22-23 mynstureiningar með 16 lykkjum). Í umferð merktri með ör í A.3, aukið út 8-16-28-2-12-26 lykkjur jafnt yfir (það eru 288-304-320-378-396-414 lykkjur í umferð áður en útaukningin byrjar) – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 296-320-348-380-408-440 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 19-20-22-25-26-28 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 43-47-51-55-61-67 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 86-94-102-110-122-134 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 43-47-51-55-61-67 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-220-236-264-288 Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru uppundir hvorri ermi = 92-100-110-118-132-144 lykkjur á milli prjónamerkja Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 196-212-232-248-276-300 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-21-21-20-21-21 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 29-31-35-37-39-45 lykkjur jafnt yfir = 225-243-267-285-315-345 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 5 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið síðan 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 62-66-72-80-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring þar til ermin mælist 11-10-9-6-6-4 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-6-8-10-8-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 60-66-72-78-84-90 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið síðan 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 16-15-14-11-11-9 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (15)
Magdalena wrote:
Hello Drops team, My question is : I have knitted lots of sweaters based on your patterns as I do absolutely love them. I would like to try and sell them just to make little money for myself ( so I can afford more yarn). Some of those sweaters are modified by me ( ribbed next instead rolled one, long sleeve instead short, etc) Is it still ok for me to sell modified versions of those sweaters ? Thank you for your help Kind regards Magdalena
08.02.2024 - 12:26DROPS Design answered:
Dear Magdalena, please find all informations required under the copyright at the bottom of each pattern page. Happy knitting!
08.02.2024 - 15:51Ida wrote:
Hej igen! Tittade på Daisy Lane mönstret ni rekommenderade istället, har funderat på den. Jag tyckte denna var så fin med rullkanten, jag antar att det blir konstigt i mönstret om jag försöker sticka en rullkant i halsringningen på det mönstret? Eller går det? Stickar jag bara slätstickning då och isåfall hur många varv dvs när ska jag ” hoppa in i mönstret” igen? Annars får jag väl testa med denna det kanske märks ganska snabbt om det funkar eller inte./ Hälsn. Ida
31.05.2023 - 09:57DROPS Design answered:
Hej Ida, det er kun de første 8 omgange glatstrik som før rullkanten, ja og da du strikker oppefra og ned, så er det bare at sætte maskerne på et par ekstra pinde, så du kan prøve selve pasformen undervejs :)
01.06.2023 - 14:27Ida wrote:
Hej! Jag har aldrig stickat en tröja förut men funderar på att prova. Kan jag sticka denna utan mönster dvs hoppa över diagraminstruktionerna och bara sticka slätstickning där istället? Finns det någon film som visar hur man stickar omslag vridet räta? / Tack på förhand!
30.05.2023 - 13:16DROPS Design answered:
Hei Ida. Kan ikke gi noen 100% riktig svar, da vi ikke har strikket denne toppen i glattstrikk og vet resultatet. Mener det skal gå greit, så lenge strikkefastheten overholdes. Men ta en titt på Daisy Lane i DROPS 231-53, det er en topp i glattstrikk og selv om den har splitt nederst kan man jo heller lage kanten som du ser i 222-34. Ta en titt på videoen "Omslag", selv om den viser hvordan man strikker et omslag fra vrangen er prinsippet det samme når det strikkes fra rettsiden - strikk i bakre maskebue . mvh DROPS Design
30.05.2023 - 14:08Agnieszka wrote:
Proszę mi powiedzieć czy schemat pokazuje wyłącznie prawą stronę robótki czy prawą i lewą?
05.05.2023 - 15:54DROPS Design answered:
Witaj Agnieszko, schemat pokazuje prawą stronę robótki, wszystkie rzędy. W tym przypadku sweterek jest przerabiany na okrągło, to oznacza, że wszystkie okrążenia będą wykonywane wyłącznie na prawej stronie robótki. Zachęcam do zapoznania się z kursem DROPS Jak odczytywać schematy w robótce na drutach, część dotyczącą przerabiania 'na okrągło'. W razie dodatkowych pytań służę pomocą. Pozdrawiam!
05.05.2023 - 16:08Elina wrote:
A2 kuviossa: X= neulo 3 silmukkaa oikein. Tarkoitetaanko tässä että neulotaan 3 silmukkaa yhteen oikealla silmukalla? Tai neulotaanko yhteen silmukkaan 3 s oikein?
22.11.2022 - 17:44DROPS Design answered:
Tämän ruudun kohdalla neulotaan 3 silmukkaa oikein, eli oikea silmukka neulotaan oikein, langankierto neulotaan oikein ja oikea silmukka neulotaan oikein (edellisellä kerroksella lisättiin 2 silmukkaa).
28.11.2022 - 18:11Elina wrote:
A2 kuviossa: X= neulo 3 silmukkaa oikein. Tarkoitetaanko tässä että neulotaan 3 silmukkaa yhteen oikealla silmukalla? Tai neulotaanko yhteen silmukkaan 3 s oikein?
17.11.2022 - 20:06Simona Biscaldi wrote:
All'inizio della spiegazione dello sprone c'e' scritto "Passare ai ferri circolari n° 4 mm e lavorare A.1 in tondo (= 144-152-160-168-176-184 ripetizioni di 8 maglie)" in realta' sarebbe 18 ...ripetizioni di 8 maglie, corretto? Grazie
13.11.2021 - 18:03DROPS Design answered:
Buonasera Simona, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
16.11.2021 - 22:25Marlene wrote:
I figured it out....needed to count the 16 underarm stitches
26.05.2021 - 23:30Marlene Wilson wrote:
In your Drops pattern 222-334 size XL ...after I finished pattern 3 and added the two stitches I have 380 stitches but when I do the deciding for body and sleeves, the stitches total 396... am I reading the pattern wrong?
26.05.2021 - 23:20DROPS Design answered:
Hi Marlene, The number of stitches on the yoke, before dividing for the sleeves and body is 380 as you say. You work 55 stitches, place 80 on a thread for the sleeve, cast on 8 (which are not counted here as they are added on to the total), work 110, 80 on thread, cast on 8 (not counted) and work 55. 55 + 80 + 110 + 80 + 55 = 380. Hope this helps and happy knitting!
27.05.2021 - 07:40Gelaude Mireille wrote:
Ik begrijp de uitleg in patroon A3, ivm het meerderen op de gemarkeerde naald. Ik heb nu 336 steken na het volgen van patroon A2, volg maat XL, en zou 2 steken moeten meerderen. En er zouden 378 steken moeten op mijn naald staan voordat ik het meerderen begin (dus plots 42 steken meer). En 380 na het meerderen.
12.05.2021 - 12:38DROPS Design answered:
Dag Mireille
In de 13e toer van A.3 zijn meerderingen opgenomen in de vorm van omslagen die je op de volgende naald gedraaid breit. Hierdoor zitten er 18 steken in A.3 (in plaats van 16) en komt het totaal aantal steken (voordat je de 2 steken meerdert op (18 x 21 herhalingen =) 378. Met de 2 meerderingen er bij kom je op 380. Dus het gaat goed.
15.05.2021 - 14:28