Feeling Whimsy |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og vösum. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Baby & Children 38-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 10. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 10. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo að ekki myndist gat. Lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið út alls 8 lykkjur í hverri útaukningsumferð. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 5 kantlykkjur að framan og 1 lykkju slétt (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið út alls 2 lykkjur í hverri útaukningsumferð (1 lykkja í hvorri hlið). ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónaðir 2 stakir vasar, þeir eru síðar settir í stykkið. Það eru prjónaðir 2 lausir kantar í hálsi. Þeir eru settir inn á hringprjóninn áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskriftinni (kantar í hálsi eru síðar saumaðir saman mitt að aftan og síðan saumaðir við hálsmál aftan í hnakka). Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður og það eru prjónaðir vasar. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. VASAR (fyrri helmingur): Fitjið upp 22-22-24-24-26-26 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á sokkaprjóna/hringprjón 5,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm fellið kantlykkjur af = 20-20-22-22-24-24 lykkjur. Setjið lykkjurnar á þráð. Prjónið annan vasa alveg eins. Geymið vasana og prjónið berustykkið. Seinni helmingur á þessum 2 vösum er prjónaður þegar peysan hefur verið prjónuð til loka og frágangur er gerður í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 5,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og prjónið garðaprjón fram og til baka (1. umferð = rétta). Prjónið garðaprjón í 8-8-8-10-11-11 cm. Klippið þráðinn frá og geymið kant í hálsi til hliðar. Prjónið annan kant í hálsmáli á sama hátt. Setjið lykkjur á hringprjón 5,5, ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 36-36-36-46-48-48 lykkjur á sama hringprjón strax eftir kant í hálsmáli og prjónið síðan sléttar lykkjur frá réttu yfir 5 lykkjur frá hinum kanti í hálsmáli = 46-46-46-56-58-58 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir allar lykkjur. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: LESTU ALLAN KAFLANN UM BERUSTYKKI ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR AÐ PRJÓNA! Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 7 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 8-8-8-12-12-12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-18-20-20 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 8-8-8-12-12-12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 7 lykkjur eftir í öllum stærðum á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 14-16-16-17-17-18 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. JAFNFRAMT í 4. umferð (þ.e.a.s. í 2. umferð frá réttu) er aukið út fyrir V-HÁLSMÁL í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan, þannig: Aukið út í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-8 sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu og eftir alla útaukningu fyrir v-hálsmáli mælist stykkið ca 16-19-19-20-20-21 cm frá uppfitjunarkanti og það eru 170-186-188-206-210-218 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið 27-29-30-31-32-33 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 36-40-40-46-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 44-48-48-52-54-56 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 36-40-40-46-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 27-29-30-31-32-33 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-124-130-134-142 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 13-14-18-18-21-23 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, setjið næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð (seinni helmingurinn af vasanum er prjónaður hér, aðeins síðar), prjónið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af þræði á öðrum vasanum (passið uppá að prjónað sé áfram frá réttu á vasanum), prjónið þar til 31-31-33-35-37-37 lykkjur eru eftir í umferð, setjið næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð (seinni helmingurinn af vasanum er prjónaður hér, aðeins síðar), prjónið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af þræði á hinum vasanum (passið uppá að prjónað sé áfram frá réttu á vasanum) og prjónið síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjur í umferð. Prjónið áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 21-22-26-28-31-33 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 120-128-136-144-148-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 46-50-54-58-61-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-40-40-46-46-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-46-48-54-54-58 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3½-3-3½-3½ cm millibili alls 6-7-7-10-9-10 sinnum = 30-32-34-34-36-38 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 23-25-30-33-38-42 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 6-8-6-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 29-31-36-39-44-48 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið fram og til baka á hringprjóna. Setjið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af þræði frá hægra framstykki á prjón 5,5. Í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 22-22-24-24-26-26 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist 8-8-8-10-10-10 cm, fellið laust af. Prjónið vasa á vinstra framstykki á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið vasana saman innan við 1 kantlykkju í kringum allan vasann. Festið síðan vasana að innanverðu á peysuna með nokkrum smáum, fínum sporum í hvert af 2 neðstu hornunum (þetta á ekki að sjást frá réttu á peysunni). Saumið kant í hálsmáli saman mitt að aftan þannig að saumurinn snúi inn. Strekkið aðeins á kantinum og saumið við hálsmál aftan í hnakka. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (37)
Cecilia Niblett wrote:
Please explain: I have knit the 2 separate collar sections. I don’t understand what the instructions mean after. Thank you
03.02.2024 - 22:14DROPS Design answered:
Dear Cecilia, after working both collar section, place without cutting the strand, cast on the number of stitches indicated for your size, place the second collar section in the needle and knit the stitches of the collar piece that was in the auxiliary needle, so as to join both collar pieces. Then purl 1 row over over all the stitches in the needles. Happy knitting!
04.02.2024 - 23:14Victoria Moen wrote:
Hei. Jeg forstår ikke helt dette med å sy inn halskragen. De to halskantene er betraktelig mindre enn selve halsen. Er det riktig at det skal være 11 cm per halskant?
20.01.2024 - 11:29Raphaela wrote:
Guten Tag Ich stricke die Grösse 9/10Jahre und habe nach dem Raglan Teil / Passe lediglich knapp 15cm erreicht statt 20cm. Ich habe nach der Markierung in jeder Hinreihe die Raglanzunahme gemacht und in jeder zweiten Hinreihe die Zunahme für den V-Ausschnitt. Mit den V-Ausschnitt Zunahmen wurde ich etwas früher fertig. Habe ich etwas falsch verstanden? Kann ich einfach noch einige Reihen stricken, ohne zuzunehmen, um die gewünschte Länge zu erreichen? Danke für die Hilfe
24.11.2023 - 20:45DROPS Design answered:
Liebe Raphaela, Ihre Maschenprobe in der Höhe stimmt etwas nicht, aber dann stricken Sie einfach bis die gewünschte Länge. Hier lesen Sie mehr über Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!
27.11.2023 - 07:57Sabine Kastrop wrote:
Volkomen onbegrijpelijke beschrijving. “Plaats markeerdraden in het werk” terwijl er nog helemaal geen werk is. Echt jammer dit.
19.10.2023 - 17:29Annette Rasmussen wrote:
Jeg synes ikke strikkefastheden kan passe i højden ?? Skal den måske hedde 27 masker i stedet for 17 Bredden passer fint
08.10.2023 - 18:00Birgit wrote:
Hallo, kann man die Ärmel auch in Reihen Stricken und nicht in Runden? Vielen Dank
08.03.2023 - 12:08DROPS Design answered:
Liebe Birgit, ja sicher, diese Lektion wird Ihnen damit helfen. Viel Spaß beim stricken!
08.03.2023 - 13:40Manoa wrote:
Bonjour, Merci beaucoup de votre aide : les poches sont finies ! En revanche, je ne parviens pas à comprendre les explications pour l'assemblage du col : une vidéo serait-elle disponible pour m'aider, svp ? Merci, bonne journée.
05.03.2023 - 22:41DROPS Design answered:
Bonjour Manoa, merci pour votre retour :) cette vidéo montre (pour un autre type de modèle, regardez à partir du time code 13:00 environ) comment on va assembler les 2 bordures d'encolure ensemble puis les coudre le long de l'encolure dos; en espérant qu'elle puisse vous aider. Bonnes finitions!
06.03.2023 - 10:34Manoa wrote:
Bonjour, Lorsqu'on reprend les poches, il est écrit de veiller à continuer à tricoter la poche sur l'endroit. Mais comme je ne visualise pas (encore ?) comment les poches seront assemblées, je ne comprends pas s'il faut bien les reprendre dans le sens où elles arrivent (endroit comme le reste du rang, ou bien au contraire, à l'envers, quand le reste du rang est à l'endroit... Merci beaucoup de votre aide. Bonne journée.
24.02.2023 - 15:29DROPS Design answered:
Bonjour Manoa, cette vidéo montre comment on tricote ce type de poches et devrait ainsi vous aider à visualiser comment faire. Bon tricot!
27.02.2023 - 09:04Lindskog Elsie wrote:
Jag stickar strl 9/10. När raglan slut skulle jag ha stickat 20 cm, men jag hade bara 13 cm gjorda. När ärmarna skulle stickas var Kids-Silk garnet slut. Man behöver 150 g inte 100 bara! Dubbla frakter.
12.02.2023 - 13:45Pia wrote:
Jeg har problemer med strikkefasthed. Er gået helt ned på p 3,5 Det er højden der ikke kommer til at passe Plejer at kunne bruge den oplyste vejledning Håber på hjælp
20.11.2022 - 10:39DROPS Design answered:
Hei Pia. Strikker du med begge kvalitetene samtidig? Du burde på pinne 5,5 få 17 pinner. Om det kun er høyden du får færre pinner, kan du ved raglan, strikke noen pinner ekstra uten økninger for å få de målene som står i oppskriften, se også målene ved målskissen. mvh DROPS Design
21.11.2022 - 11:44