Cloud Cover Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með poppkorni og kúlum úr DROPS Melody. Stærð XS - XXL.
DROPS 220-10 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram handveg. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í garðaprjóni. BAKSTYKKI: Leggið hringprjóna 7 og hringprjóna 8 saman og fitjið upp 54-60-66-72-78-84 lykkjur yfir báða þessa hringprjóna með Melody – þetta er gert til að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur. Dragið út hringprjón 8 úr lykkjunum og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka á hringprjón 7 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 3 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 48-54-60-66-72-78 lykkjur (= 8-9-10-11-12-13 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1 (= 3 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 46-46-48-47-49-49 cm, fellið af 2-2-2-8-8-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 50-56-62-56-62-68 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en A.1 er einungis prjónað yfir 1 lykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 57-59-61-63-65-67 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af miðju 16-18-18-20-20-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjóni og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 16-18-21-17-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Leggið hringprjóna 7 og hringprjóna 8 saman og fitjið upp 33-36-39-42-45-48 lykkjur yfir báða þessa hringprjóna með Melody. Dragið út hringprjón 8 úr lykkjunum og prjónið garðaprjón fram og til baka á hringprjón 7. Þegar stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): Prjónið A.1 yfir fyrstu 6-9-6-9-6-9 lykkjur (= 2-3-2-3-2-3 mynstureiningar með 3 lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu 24-24-30-30-36-36 lykkjur (= 4-4-5-5-6-6 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1 að hlið (= 3 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 46-46-48-47-49-49 cm, fellið af 2-2-2-8-8-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 31-34-37-34-37-40 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en A.1 er nú einungis prjónað yfir 1 lykkju í hlið við handveg. Þegar stykkið mælist ca 57-59-61-63-65-67 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 59-61-63-64-66-68 cm, setjið fyrstu 11-12-12-13-13-14 lykkjur í byrjun á umferð frá miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að koma í veg fyrir að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram í garðaprjóni og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 16-18-21-17-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! VINSTRA FRAMSTYKKI: Leggið hringprjóna 7 og hringprjóna 8 saman og fitjið upp 33-36-39-42-45-48 lykkjur yfir báða þessa hringprjóna með Melody. Dragið út hringprjón 8 úr lykkjunum og prjónið garðaprjón fram og til baka á hringprjón 7. Þegar stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): Prjónið A.1 (= 3 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 24-24-30-30-36-36 lykkjur (= 4-4-5-5-6-6 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1 yfir síðustu 6-9-6-9-6-9 lykkjur við miðju að framan (= 2-3-2-3-2-3 mynstureiningar með 3 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 46-46-48-47-49-49 cm, fellið af 2-2-2-8-8-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 31-34-37-34-37-40 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en A.1 er nú einungis prjónað yfir 1 lykkju í hlið við handveg. Þegar stykkið mælist ca 57-59-61-63-65-67 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 59-61-63-64-66-68 cm, setjið fyrstu 11-12-12-13-13-14 lykkjur í byrjun á umferð frá miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að koma í veg fyrir að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram í garðaprjóni og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 16-18-21-17-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. ERMI: Prjónið nú upp lykkjur meðfram handveg eins og útskýrt er að neðan, þ.e.a.s. frá botni á handveg og upp að öxl og frá öxl og niður að botni á handveg í hinni hliðinni – ermarnar eru prjónaðar ofan frá og niður. Prjónið upp frá réttu 42-48-48-54-54-60 lykkjur innan við 1 kantlykkju á hringprjóna 8 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 3 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 36-42-42-48-48-54 lykkjur (= 6-7-7-8-8-9 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1 (= 3 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar ermin mælist 2-2-2-7-7-7 cm frá þar sem lykkjur eru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónamerkin merkja hvar sauma á ermar við botn á handveg. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka eins og áður. Þegar ermin mælist 4 cm frá prjónamerki, fækkið um 1 lykkju í byrjun á umferð með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Þegar stykkið mælist 8 cm, fækkið um 1 lykkju í lok umferðar með því að prjóna 2 lykkjur snúnar slétt saman = 40-46-46-52-52-58 lykkjur. Endurtakið úrtöku í stærð L, XL og XXL í byrjun á umferð þegar ermin mælist 12 cm frá prjónamerki og í lok umferðar þegar ermin mælist 16 cm frá prjónamerki = 40-46-46-50-50-56 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en A.1 er nú einungis prjónað yfir ystu 2-2-2-1-1-1 lykkjur í hvorri hlið. Prjónið þar til ermin mælist ca 46-45-44-42-41-39 cm frá prjónamerki – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til ermin mælist 48-47-46-44-43-41 cm frá prjónamerki, eða að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR-2: Saumið ermar í við botn á handveg – prjónamerkin á ermum eiga að passa við hlið á framstykki/bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – byrjið neðst á ermi og saumið sauminn upp að handveg (saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur), haldið áfram með saum frá handveg og niður meðfram framstykki/bakstykki. Endurtakið í hinni hliðinni á stykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 56 til 78 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þráðum að framan) á hringprjón 7 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING! |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Siv wrote:
Beskrivelsen på popcorn i oppskriften og på videoen samsvarer ikke. Videoen viser det mye bedre- beskrivelsen burde vært endret
02.08.2023 - 13:23HK wrote:
Hei! Flott jakke! Men kvar finn eg diagrammet til mønsteret? På min mobil kjem berre forklaringa til dei forskjellige teikna fram (også om eg veljer "skrivebordsvising"). HK
06.03.2021 - 11:04DROPS Design answered:
Hei HK, Diagrammene er til høyre for målskissen på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!
08.03.2021 - 07:23Laila wrote:
Kevyt kuin pilvenhattara
19.01.2021 - 23:44Anette wrote:
Myk sky
14.01.2021 - 16:39Mel Be wrote:
Retro
14.01.2021 - 03:08Mel Be wrote:
I totally agree with the retro comment; I chose it for that very reason.
14.01.2021 - 03:05Nina wrote:
Varm tåke
11.01.2021 - 20:00Laila Saurov wrote:
I suggest: Snow in May
10.01.2021 - 22:44Miranda wrote:
Suggested name: Thistledown
10.01.2021 - 21:39Meri wrote:
So beautiful and a bit retro. I NEED to make this!!
10.01.2021 - 11:48