Peaches and Cream |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með ¾-löngum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (á við um handveg): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja sem auka á út/fækka yfir (t.d. 70 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 8,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 8. og 9. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 7. og 8. hver lykkja og 8. og 9. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, ofan frá og niður. Handvegurinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 20-21-20-21-21-22 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan ystu 3 lykkjur í hvorri hlið á stykki í garðaprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 20-20-22-22-24-24 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 40-41-42-43-45-46 lykkjur. Klippið þráðinn frá. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 20-21-20-21-21-22 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan ystu 3 lykkjurnar í hvorri hlið á stykki í garðaprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 4 cm – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið síðan bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Setjið inn hægri og vinstri öxl á sama hringprjón þannig að 20-20-22-22-24-24 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmái verða mitt í umferð = 60-62-62-64-66-68 lykkjur. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Prjónið mynstur frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 14-15-14-15-15-16 lykkjur, garðaprjón yfir næstu 26-26-28-28-30-30 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 14-15-14-15-15-16 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón yfir lykkjur fyrir hálsmáli. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm frá uppfitjunarkanti á öxlum, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4.-4.-4.-2.-2.-2. hverri umferð, alls 2-4-8-11-15-19 sinnum í hvorri hlið = 64-70-78-86-96-106 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fitjið nú upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 4 umferðir sléttprjón með 6 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1 (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm og 12-13-14-15-16-17 cm = 64-70-78-86-96-106 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg og aukið jafnframt út um 8-8-9-10-12-14 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 78-84-93-102-114-126 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Bakstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 20-21-20-21-21-22 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan ystu 3 lykkjur í hvorri hlið á stykki í garðaprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjurnar og fitjið upp 20-20-22-22-24-24 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 40-41-42-43-45-46 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl að framan. HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 20-21-20-21-21-22 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan ystu 3 lykkjur í hvorri hlið á stykki í garðaprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Fitjið upp 20-20-20-22-22-22 lykkjur á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-8-9-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 27-28-29-30-30-30 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af næstu 25-26-27-28-28-28 lykkjum (þ.e.a.s. prjónið bæði í fremri og aftari lykkjubogann), 1 lykkja slétt = 52-54-56-58-58-58 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka fyrir handveg og fitjið jafnframt upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-3-3 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 0-1-2-3-5-6 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 88-92-96-100-104-110 lykkjur. Tengið stykkið saman og prjónið síðan í hring á hringprjón. Setjið 1 prjónamerki þar sem stykkið var sett saman (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem það var sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA -2. Fækkið lykkjum svona með 4-4-3-3-2-2 cm millibili alls 3-3-4-4-5-6 sinnum = 82-86-88-92-94-98 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-38-39-39-40-40 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 51-54-57-60-60-63 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-45-46-46-47-47 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið ermar við fram- og bakstykki með því að leggja inn ermarnar undir kant í garðaprjóni meðfram handvegi og saumið lítil spor frá réttu (það á ekki að vera laus kantur þegar saumað er og saumað er í ystu lykkju í garðaprjóni frá réttu, þannig að kantur í garðaprjóni liggur fallega utan á ermi). |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (63)
Brigitte RAPPENEAU wrote:
Ou trouver nombre de pelotes à commander pour la taille choisie ? Merci !
08.12.2023 - 18:41DROPS Design answered:
Bonjour Mme Rappeneau, vous trouverez la quantité nécessaire au poids pour chaque taille dans l'en-tête, autrement dit, il faut ici en taille S par exemple 125 g Brushed Alpaca Silk / 25 g la pelote = 5 pelotes. Pour trouver votre taille mesurez un vêtement similaire dont vous aimez la forme et comparez les mesures à celles du schéma, retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
11.12.2023 - 07:20Michelle wrote:
Just finished this jumper for myself and I love it. Pattern instructions were easy to follow . Thank you Drops.
27.11.2023 - 11:46Olga wrote:
Buongiorno, questo modello è adatto alla stagione invernale?
03.07.2023 - 11:00DROPS Design answered:
Hi Olga, I live in Poland and I wear this sweater in cold Polish winter. It is very warm. Happy knitting!
05.07.2023 - 11:09Anne wrote:
How to I create the creases in the sleeves that are show in the picture? Do I fold it when attaching the sleeve to the garment?
31.12.2022 - 21:12DROPS Design answered:
Dear Anne, this video shows how to work the increases to make th puff-sleeve - you can then shape the top of sleeve nicely along armhole before sewing. Happy knitting!
02.01.2023 - 14:01Mary wrote:
Er staat ronde hals maar die van mij is vierkant hoe krijg ik hem rond
20.12.2022 - 20:24DROPS Design answered:
Dag Mary,
Je hebt gelijk, er staat bij de trefwoorden een ronde hals, maar het is een vierkante hals. Ik zal het doorgeven, want dit trefwoord hoort er niet bij.
20.12.2022 - 21:41Maraili wrote:
Hej igen, det er i bunden af ryggen, lige inden ribben. 8 udtagninger fra vrangen jævnt fordelt. Det eneste sted man skal tage ud fra vrangen. Det giver huller. Mvh. Maraili
20.12.2022 - 16:57DROPS Design answered:
Hej Maraili, hvis du strikker omslaget drejet på næste pind, vil hullerne ikke kunne ses.... MEN du kan også tage ud ved at strikke 2 masker i én maske, hvis du synes det bliver finere :)
21.12.2022 - 14:42Maraili wrote:
Hej strikkere, jeg har samme spørgsmål som Ch. Kristensen, da der opstår huller ved udtagningerne lavet på vrangen. Dem ser man ikke på billedet. Desuden forstår jeg ikke formålet med udtagningerne. Tak! Mvh. M
19.12.2022 - 21:37DROPS Design answered:
Hej Maraili, vi vil gerne hjælpe, men skriv hvor du er i opskriften? Hvilke huller og hvilke udtagninger?
20.12.2022 - 14:37Maraili wrote:
Hej Drops, tak for en fin opskrift. vedr. bagstykket. Hvordan kan man tage ud på hver 4. pind, når det skal ske fra retsiden? Skal det så ikke være hver 5. pind? Måske har jeg misforstået noget. Mvh. Maraili
25.11.2022 - 22:29DROPS Design answered:
Hej Maraili, hvis din første pind er fra retsiden, så tager du ind på pind 1,5,9,13 osv (da bliver det hver 4.pind :)
30.11.2022 - 14:17Emma wrote:
When knitting the front piece, am I supposed to make the additions to both sides immediately after knitting the 8 cm shoulder pieces? The back piece required an additional 4 cm after the shoulder pieces that were 4 cm, so I am a bit concerned I might have made the front piece too long.
06.05.2022 - 06:49DROPS Design answered:
Dear Emma, yes correct, the neck on back piece is shorter, so that you join both shoulders together after 4 cm, while the neck on front piece will be deeper, reason why you join both shoulders together after 8 cm (in 3rd and 4th size). Happy knitting!
06.05.2022 - 07:50Jacqueline wrote:
Vraag gaat over meerdering eind achterpand voordat het boord begint, 8 steken meerderen verdeel over 68 steken, zonder de kantsteken, zou inhouden tussen 8e en 9e steek zoals in het voorbeeld. Nu tel ik vanaf steek 2 en dan maak ik een lus tussen 8e en 9e steek maar het komt niet uit. Het moet ik het dan wel doen? Graag advies! Dank
27.02.2022 - 19:18DROPS Design answered:
Dag Jacqueline,
Als je 68 deelt door 8 dan kom je op 8,5, dus je zou om de 8,5 steken moeten meerderen. Dat kan natuurlijk niet, dus je meerdert afwisselt steeds na 8 en 9 steken.
28.02.2022 - 07:25